Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

Upplýsingar um starf

Starf

Bókari

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

20.02.2026

Bókari

Við leitum að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við frábæran hóp starfsfólks ÁTVR. Viðkomandi þarf að vera jákvæður og metnaðarfullur með reynslu og þekkingu í bókhaldi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skráning reikninga í samþykktarferli

  • Bókun fjárhagsbókhalds

  • Afstemmingar við birgja

  • Afstemmingar á fjárhag

  • Umsjón með bókun á sjóði

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Góð kunnátta í bókhaldskerfum

  • Kunnátta í Excel

  • Nákvæmni og vandvirkni

  • Þjónustulund

  • Jákvætt viðmót

  • Þekking á Navision og/eða Business Central er kostur


Frekari upplýsingar um starfið

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

ÁTVR rekur 50 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Kristín Snorradóttir

mannauðsráðgjafi

Tölvupóstur: starf@vinbudin.is

Sími: 560-7700

Þjónustuaðili

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

Upplýsingar um starf

Starf

Bókari

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

20.02.2026