
Þjónustuaðili
Skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sviðsstjóri stefnumótunar og miðlunar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.01.2026
Umsóknarfrestur
09.02.2026
Sviðsstjóri stefnumótunar og miðlunar
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sviðsstjóra stefnumótunar og miðlunar.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt verkefni, hafa áræði og þekkingu til að leiða verkefni og getu til að leysa verk á eigin spýtur og í samstarfi við aðra. Sviðsstjóri heyrir undir forstjóra stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Forysta og dagleg stjórnun sviðsins.
Vinna að gerð og framfylgd landsskipulagsstefnu, strandsvæðisskipulags og raflínuskipulags.
Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð stofnunarinnar.
Viðburðahald og útgáfa á vegum stofnunarinnar.
Umsjón með undirbúningi og útgáfu leiðbeininga á vegum Skipulagsstofnunar.
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skipulagsfræði, arkitektúrs eða hliðstæðum greinum.
Þekking og reynsla af skipulagsmálum.
Leiðtogahæfileikar, færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
Frumkvæði, skapandi hugsun og metnaður.
Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
Gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskukunnátta.
Frekari upplýsingar um starfið
Skipulagsstofnun sinnir stefnumótun, stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag og framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu auðlinda og vandaða byggð að leiðarljósi. Stofnunin vinnur í víðtæku samráði við sveitarfélög, önnur stjórnvöld og hagsmunaaðila.
Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipulagslaga, laga um skipulag haf- og strandsvæða og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana og heyrir undir innviðaráðuneytið. Hjá stofnuninni ríkir góður starfsandi og í boði er góð starfsaðstaða.
Nánari upplýsingar má finna á www.skipulag.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir frá ráðningu.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar nk.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is)
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.02.2026

Þjónustuaðili
Skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sviðsstjóri stefnumótunar og miðlunar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.01.2026
Umsóknarfrestur
09.02.2026