Þjónustuaðili
Hæstiréttur Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti dómara við Hæstarétt Íslands laust til umsóknar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
13.04.2026
Embætti dómara við Hæstarétt Íslands laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Skipað verður í embættið frá 1. september 2026. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra og netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf hæstaréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem hæstaréttardómari.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Frekari upplýsingar um starfið
Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026
Þjónustuaðili
Hæstiréttur Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti dómara við Hæstarétt Íslands laust til umsóknar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
13.04.2026