Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjölmiðla­nefnd

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd – Netvís, Netöryggismiðstöð Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

04.03.2026

Sérfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd – Netvís, Netöryggismiðstöð Íslands

Hefur þú brennandi áhuga á samfélagsmiðlum og áhrifum þeirra á hugmyndir fólks?

Hefur þú tekið eftir öllum þeim breytingum sem orðið hafa með tilkomu nýrra miðla og tæknibreytinga? Hefur þú velt fyrir þér samfélagsmiðlanotkun barna og ungmenna og áhrifum þeirra? Hefur þú áhuga á því að stuðla að aukinni þekkingu og færni ólíkra aldurshópa með það að markmiði að styrkja lýðræðið?

Netvís leitar að öflugum einstaklingi sem getur unnið að gerð fræðsluefnis, unnið úr rannsóknum og sinnt fræðslu til ólíkra aldurs- og samfélagshópa undir merkjum Netvís. Starfið felst annars vegar í gerð kennslu- og fræðsluefnis, og hins vegar í fræðslu til ólíkra hópa. Markmiðið er að ná til fólks á öllum aldri í þeim tilgangi að auka færni þess í að meta og greina efni á samfélagsmiðlum, kunna grunnskil á gervigreind og leitarvélum, sem og að vera gagnrýnið á hvaðan upplýsingar koma.

Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands heyrir undir Fjölmiðlanefnd, sjálfstæða stjórnsýslunefnd, sem hefur m.a. það hlutverk að stuðla að auknu miðla- og upplýsingalæsi meðal almennings. Megin verkefni Netvís er að sinna félagslegu netöryggi, þ.m.t. Evrópuverkefninu Safer Internet Centre á Íslandi. Netvís er í öflugu samstarfi við sambærilegar miðstöðvar bæði á Norðurlöndunum og í Evrópu.

Starfssvið:

  • Að sinna fræðslu fyrir ólíka aldurs- og samfélagshópa

  • Að vinna að gerð kennslu- og fræðsluefnis fyrir ólíka aldurs- og samfélagshópa

  • Að vinna skýrslur upp úr reglulegum könnunum sem kanna færni og þekkingu barna og ungmenna annars vegar og fullorðinna hins vegar til að nýta samfélagsmiðla, leitarvélar og þekkja efni búið til af gervigreind

  • Að halda utan um Tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi (TUMI)

  • Að hafa frumkvæði að nýjum verkefnum til að efla færni og þekkingu almennings á nýrri tækni

  • Að vera í samskiptum við stjórnsýslu og aðra hagaðila

  • Virk þátttaka í norrænu og evrópsku samstarfi

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi

  • Mjög gott vald á íslensku og færni til að rita vandaðan texta er skilyrði

  • Að eiga auðvelt með að koma fram og tala fyrir framan ólíka aldurshópa

  • Góð enskukunnátta er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli er kostur

  • Þekking á miðla- og upplýsingalæsi (e. media and information literacy) er kostur

  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikar

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Sjálfstæði, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum

  • Óskað er eftir einstaklingi sem býr yfir vaxtarhugarfari og hefur metnað og vilja til að þróa sig í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Um starfskjör starfsmanna Netvís/Fjölmiðlanefndar fer eftir gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur gert við viðkomandi stéttarfélag. Um er að ræða krefjandi starf þar sem reynir á frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi. Starfið felur í sér ferðalög innanlands sem og erlendis vegna fræðslustarfsemi, funda og til að sækja ráðstefnur. Aðalstarfsstöð er skrifstofa Fjölmiðlanefndar að Borgartúni 21, með möguleika á sveigjanleika hvað varðar heimavinnu að hluta. Í boði er starf í síbreytilegu og spennandi umhverfi.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt prófskírteini og kynningarbréfi þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í allt að sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026. Senda skal umsóknir ásamt fylgigögnum til Fjölmiðlanefndar á netfangið: netvis@netvis.is merkt „Sérfræðingur“.

Fjölmiðlanefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Skúli Bragi Geirdal

sviðsstjóri Netvís

Tölvupóstur: skuli@netvis.is

Sími: 415-0415

Þjónustuaðili

Fjölmiðla­nefnd

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd – Netvís, Netöryggismiðstöð Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

04.03.2026