
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðsfulltrúi HSN
Staðsetningar
Norðurland eystra
Óstaðbundið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
25.11.2025
Umsóknarfrestur
09.12.2025
Mannauðsfulltrúi HSN
Ert þú nákvæma talnatýpan sem elskar að vera í samskiptum við fólk?
Mannauðssvið Heilbrigðisstofnunar Norðurlands óskar eftir að ráða jákvæðan og skipulagðan aðila í 50% starf mannauðsfulltrúa. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfsstöðvum HSN.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra mannauðs
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn launavinnsla og yfirferð í Vinnustund
Gerð ráðningasamninga
Útreikningar á kjörum og réttindum starfsmanna skv. samningum
Umbætur og eftirlit með ferlum tengdum starfssviðinu
Ráðgjöf við starfsfólk og stjórnendur um málefni sem snúa að launakjörum
Launagreiningar
Önnur verkefni falin af framkvæmdastjóra mannauðs
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Góða greiningarhæfni, nákvæmni og talnagleggni
Góða tölvukunnáttu og tæknilæsi. Góð kunnátta í excel er skilyrði.
Ríka skipulagshæfni og getu til að forgangsraða
Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt lausnamiðað hugarfar
Frumkvæði, metnað, drifkraft og sjálfstæði í vinnubrögðum
Mjög góða færni í íslensku og góða enskukunnáttu
Ökuleyfi, hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldrunarþjónustu í formi hjúkrunar- og dvalarrýma. Meginstarfstöðvar HSN eru starfstöðvarnar á Akureyri, Blönduósi, Dalvík, Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru rúm 37.000 og starfsfólk er um 730 talsins.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna – Virðing
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert og leggur HSN áherslu á að greiða samkeppnishæf laun. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 09.12.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Ólafsdóttir
Tölvupóstur: sigga@mognum.is
Hildur Ösp Gylfadóttir
Tölvupóstur: hildur.osp.gylfadottir@hsn.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðsfulltrúi HSN
Staðsetningar
Norðurland eystra
Óstaðbundið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
25.11.2025
Umsóknarfrestur
09.12.2025