Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Íslenskar orkurann­sóknir

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf fyrir háskólanema í jarðvísindum og verkfræði

Staðsetningar

Höfuðborgarsvæðið

Norðurland eystra

Starf skráð

18.02.2026

Umsóknarfrestur

10.03.2026

Sumarstörf fyrir háskólanema í jarðvísindum og verkfræði

Við leitum að metnaðarfullum háskólanemum í sumar. Störfin fela í sér vinnu í fjölbreyttum verkefnum á sviði jarðfræði, jarðeðlisfræði, jarðefnafræði og verkfræði. Verkefni geta falið í sér ýmsar mælingar og rannsóknir úti í mörkinni og þátttöku í faglegum rannsóknarverkefnum.

Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi í jarðvísindum eða verkfræði.

Einkunnarorð stefnu ÍSOR er sjálfbærni í verki og er kjarninn í stefnu og starfsemi ÍSOR að veita ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu jarðrænna auðlinda

Frekari upplýsingar um starfið

Við bjóðum:

  • Þátttöku í fjölbreyttum verkefnum.

  • Góðan hóp samstarfsfólks.

  • Vinnu í alþjóðlegu umhverfi.

  • Nútímalega vinnuaðstöðu.

Um er að ræða 100% starf í 2-5 mánuði á skrifstofu ÍSOR, annaðhvort í Kópavogi eða á Akureyri. Starfið getur falið í sér útivinnu og langa vinnudaga á köflum. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun ÍSOR og hvetjum við öll kyn til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2026. Umsóknir geta gilt í hálft ár frá því að umsóknarfrestur rennur út.

ÍSOR leggur áherslu á jöfn tækifæri starfsfólks, ánægða og árangursmiðaða liðsheild og framþróun. Metnaður ÍSOR er að vera í fararbroddi þekkingar á sviði sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda og virðisskapandi lausna sem miða að því að koma jörðinni og fólki til góða.

Umsóknarfrestur er til og með 10.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Valgerður Gunnarsdóttir

sviðsstjóri rekstrar- og mannauðs

Tölvupóstur: valgerdur.gunnarsdottir@isor.is

Þjónustuaðili

Íslenskar orkurann­sóknir

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf fyrir háskólanema í jarðvísindum og verkfræði

Staðsetningar

Höfuðborgarsvæðið

Norðurland eystra

Starf skráð

18.02.2026

Umsóknarfrestur

10.03.2026