Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
06.05.2026
Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing með reynslu af fjármálamarkaði, í deild bakvinnslu á sviði markaðsviðskipta.
Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.
Bakvinnslan er ein af fjórum deildum á sviðinu og sinnir m.a. frágangi viðskipta vegna lánamála ríkisins, gjaldeyrisviðskipta og markaðsaðgerða Seðlabankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Innlent og erlent verðbréfauppgjör
Verðbréfavarsla
Greiðslumiðlun í krónum og erlendum myntum
Vöktun á kortauppgjörskerfi
Bankaþjónusta fyrir ríki og ríkisstofnanir
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði
Viðeigandi reynsla af fjármálamarkaði
Þekking á innlendum og erlendum greiðslu- og uppgjörskerfum er kostur
Þekking á Swift greiðslu- og verðbréfaskeytum er kostur
Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
Nákvæmni, frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Frekari upplýsingar veita Salóme R. Birgisdóttir forstöðumaður bakvinnslu (salome.r.birgisdottir@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir mannauðsráðgjafi (mannaudur@ sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 6. maí nk.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2026
Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
06.05.2026