Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjölmiðla­nefnd

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

04.03.2026

Lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd

Ertu að velta fyrir þér hvernig upplýsingar dreifast og samspili fjölmiðla og samfélagsmiðla? Hefur þú tekið eftir öllum þeim breytingum sem orðið hafa á því hvernig almenningur myndar sér skoðun með tilkomu nýrra miðla og tæknibreytinga?

Fjölmiðlanefnd óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa. Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem annast eftirlit með lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu nr. 23/2013 og lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum nr. 62/2006 og annast daglega stjórnsýslu á því sviði.

Starfssvið:

  • Almenn lögfræðistörf

  • Þátttaka í stefnumörkun

  • Samskipti við stjórnsýslu

  • Þátttaka í norrænu og evrópsku samstarfi

Hæfniskröfur

  • Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði er skilyrði (hafa lokið 5 ára laganámi)

  • Mjög gott vald á íslensku og færni til að rita vandaðan texta er skilyrði

  • Þekking á sviði stjórnsýsluréttar og starfsreynsla innan stjórnsýslunnar er æskileg

  • Þekking og reynsla á sviði fjölmiðlaréttar er æskileg

  • Góð enskukunnátta er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg

  • Rík áhersla er lögð á styrkleika í samvinnu og samskiptum

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Sjálfstæði, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Um starfskjör starfsmanna Fjölmiðlanefndar fer eftir gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert. Um er að ræða krefjandi og áhugavert starf þar sem reynir á lögfræðilega getu og kunnáttu. Aðalstarfsstöð er skrifstofa Fjölmiðlanefndar að Borgartúni 21, með möguleika á fjarvinnu að hluta. Í boði er starf í síbreytilegu og spennandi umhverfi.

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt prófskírteini og kynningarbréfi þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í allt að sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026. Áskilið er að umsóknir og fylgigögn berist rafrænt á netfangið postur@fjolmidlanefnd.is.

Fjölmiðlanefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elfa Ýr Gylfadóttir

framkvæmdastjóri

Tölvupóstur: elfa@fjolmidlanefnd.is

Sími: 415-0415

Þjónustuaðili

Fjölmiðla­nefnd

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

04.03.2026