Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lands­réttur

Upplýsingar um starf

Starf

Embætti dómara við Landsrétt laust til umsóknar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

27.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026

Embætti dómara við Landsrétt laust til umsóknar

Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt. Miðað er við að skipa í embættið frá 5. október 2026. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016.

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara.

Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari.

Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Frekari upplýsingar um starfið

Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026

Þjónustuaðili

Lands­réttur

Upplýsingar um starf

Starf

Embætti dómara við Landsrétt laust til umsóknar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

27.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026