
Þjónustuaðili
Íslenskar orkurannsóknir
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í jarðvísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
06.04.2026
Sérfræðingur í jarðvísindum
Við hjá ÍSOR leitum að metnaðarfullum og drífandi sérfræðingi í spennandi verkefni á sviði jarðvísinda og sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda með áherslu á virðisskapandi lausnir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Jarðvísindalegar rannsóknir og úrvinnsla gagna.
Kortlagning á jarðfræði og rennslisleiðum í grunnvatns- og jarðhitakerfum.
Fagleg ráðgjöf til verkkaupa og annarra hagaðila.
Þátttaka í faglegum rannsóknarverkefnum.
Ýmsar mælingar úti í mörkinni.
Hæfniskröfur
Háskólapróf í jarðvísindum eða skyldum fögum (jarðfræði, jarðeðlisfræði, jarðefnafræði, verkfræði o.s.frv.) sem nýtist í starfi.
Þekking á sviði grunnvatnsfræði kostur.
Mjög góð almenn tölvukunnátta.
Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Frumkvæði, metnaður til árangurs og öguð vinnubrögð.
Mjög góð samskiptahæfni og sveigjanleiki í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða starf á skrifstofu okkar í Kópavogi í 100% starfshlutfalli til eins árs með möguleika á framlengingu eftir stöðu verkefnasamninga. Verkefnin geta falið í sér vinnu á landsbyggðinni og langa vinnudaga á köflum. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun ÍSOR og hvetjum við öll kyn til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknir geta gilt í hálft ár frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við bjóðum:
Tækifæri til að vinna í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum á sviði orku- og umhverfismála.
Nútímalega vinnuaðstöðu.
Sveigjanlegan vinnutíma.
ÍSOR leggur áherslu á jöfn tækifæri starfsfólks, ánægða og árangursmiðaða liðsheild og framþróun. Metnaður ÍSOR er að vera í fararbroddi þekkingar á sviði sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda og virðisskapandi lausna sem miða að því að koma jörðinni og fólki til góða.
Aðalstöðvar ÍSOR eru í Kópavogi og starfsstöð er á Akureyri.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sveinborg H. Gunnarsdóttir
Sviðsstjóri Könnunar og vöktunar
Tölvupóstur: sveinborg.h.gunnarsdottir@isor.is

Þjónustuaðili
Íslenskar orkurannsóknir
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í jarðvísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
06.04.2026