Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Hagfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Hagfræðingur
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða hagfræðing í teymi rannsókna og spáa á svið hagfræði og peningastefnu.
Svið hagfræði og peningastefnu hefur umsjón með greiningu á þróun innlendra og erlendra efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og áhættumat sem liggja til grundvallar mótun peningastefnunnar. Greining á stöðu og efnahagshorfum hverju sinni er birt í ritinu Peningamálum og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin. Jafnframt tekur sviðið þátt í mótun stefnu í gengis- og peningamálum og stundar rannsóknir á sviði efnahags- og peningamála.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur gagna vegna spágerðar og verkefni tengd gagnasöfnun
Þátttaka í rannsóknum á sviði peninga- og þjóðhagfræði
Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspá bankans
Þátttaka í greiningu og skrif í Peningamál
Aðstoð við tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
B.Sc. próf í hagfræði
Reynsla af rannsóknum á sviði peninga- og þjóðhagfræði
Reynsla af notkun tölfræðiforrita í hagrannsóknum
Gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku
Góð hæfni í að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt
Lipurð í samskiptum og góð hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum
Frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og metnaður í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Karen Á. Vignisdóttir
aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu
Tölvupóstur: karen.vignisdottir@sedlabanki.is
Erla Traustadóttir
mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar
Tölvupóstur: mannaudur@sedlabanki.is
Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Hagfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026