Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Landhelgisgæslan óskar eftir jákvæðum launafulltrúa í fjölbreytt starf

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026

Landhelgisgæslan óskar eftir jákvæðum launafulltrúa í fjölbreytt starf

Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða jákvæðan og talnaglöggan einstakling í starf launafulltrúa á mannauðssviði. Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf í lifandi og faglegu starfsumhverfi þar sem nákvæmni, samheldni og samvinna skipta máli.
Um fullt starf er að ræða og er starfsstöð viðkomandi á öryggissvæði Landhelgisgæslunnar í Keflavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Launavinnsla og frágangur launa

  • Útreikningar, undirbúningur og úrvinnsla í tengslum við launavinnslu

  • Umsjón með skráningu vakta, tímaskráningum og uppgjöri vinnuskýrslna í vakta- og viðverukerfi

  • Ráðgjöf og upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks varðandi launa-, kjara- og réttindamál

  • Önnur fjölbreytt verkefni í samráði við mannauðsstjóra

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Þekking á launavinnslu og kjaramálum er kostur

  • Mjög góð almenn tölvukunnátta og góð færni í Excel

  • Þekking á Orra, launakerfi ríkisins, er kostur

  • Góð færni í framsetningu gagna, nákvæmni og öguð vinnubrögð

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sveigjanleiki

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Búseta á Suðurnesjum er kostur

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Frekari upplýsingar um starfið

Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta – Fagmennska. Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð. Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) í síma 511 1225.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Landhelgisgæslan óskar eftir jákvæðum launafulltrúa í fjölbreytt starf

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026