Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Embætti forseta Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður á skrifstofu embættis forseta Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

12.05.2026

Starfsmaður á skrifstofu embættis forseta Íslands

Embætti forseta Íslands auglýsir laust til umsóknar starf á skrifstofu embættisins. Viðkomandi ber ábyrgð á fjölbreyttum samskiptum og verkefnastjórn tengdum dagskrá forseta, bréfaskriftum, móttöku gesta á skrifstofu, málaskrá og málalyklum embættisins, sem og vinnu við skjalastjórn, skjalavörslu og ýmis önnur tilfallandi skrifstofustörf. Viðkomandi þarf að hafa góða tölvu- og tæknikunnáttu, ríka þjónustulund og gott vald á íslensku og ensku, bæði ritaðri og talaðri. Gerð er krafa um háskólapróf og/eða víðtæka starfsreynslu.

Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og frumkvæði.

Hæfniskröfur

  • Samskipta- og skjalakerfinu GoPro Foris eða sambærilegum kerfum.

  • MS Office pakkanum, sérstaklega Outlook, Excel og Word.

  • Vefumsjón og samfélagsmiðlum.

  • Upplýsingaöflun, miðlun og frágangi mála í málaskrá.

  • Þjónustu og gagnaöflun fyrir starfsmenn, stofnanir og almenning.

  • Meðferð trúnaðarupplýsinga.

Nauðsynlegt er að viðkomandi sé lipur í samskiptum og tileinki sér umbótahugsun, geti starfað bæði sjálfstætt og í teymi og unnið skipulega sem og sveigjanlega, m.a. á miklum annatímum.

Frekari upplýsingar um starfið

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Um er að ræða fullt starf og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfið er laust frá 1. ágúst 2026.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Kristín Kvaran

Tölvupóstur: thelma@intellecta.is

Sími: 511-1225

Sigríður BJörk Gunnarsdóttir

fjármála- og rekstrarstjóri á skrifstofu forseta Íslands

Sími: 540-4400

Þjónustuaðili

Embætti forseta Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður á skrifstofu embættis forseta Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.04.2026

Umsóknarfrestur

12.05.2026