Þjónustuaðili
NVS
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðs- og launafulltrúi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.01.2026
Umsóknarfrestur
09.02.2026
Mannauðs- og launafulltrúi
Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf mannauðs- og launafulltrúa. Leitað er að nákvæmum og skipulögðum einstaklingi með góða samskiptafærni.
Um fullt starf er að ræða og mun mannauðs- og launafulltrúi tilheyra sviði mannauðsmála og heyra undir sviðsstjóra. Æskilegt er að viðkomandi verði með starfsstöð á höfuðstöðvum stofnunarinnar á Hvolsvelli eða annarri starfsstöð stofnunarinnar á landsbyggðinni.
Náttúruverndarstofnun starfar á 16 starfsstöðvum um allt land.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með vakta- og viðverukerfi, skráningum vakta, tímaskráningum og uppgjöri vinnuskýrslna í samvinnu við stjórnendur
Umsjón með undirbúningi launavinnslu, skráningu launaforsendna og annarri skráningu í launa- og mannauðskerfi
Þátttaka í gerð ráðningarsamninga og m
óttaka nýs starfsfólks, upplýsingagjöf og gagnaöflun við upphaf starfs og frágangur við starfslok
Upplýsingagjöf um mannauðs- og launamál, þróun mælikvarða og skýrslugerð
Þátttaka í öðrum mannauðsmálum svo sem ráðningum, starfsþróun, mótun vinnustaðamenningar auk úrvinnslu og eftirfylgni vinnustaðagreininga í samvinnu við sviðsstjóra
Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk og stjórnendur á sviði mannauðs- og launamála
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem á sviði mannauðsstjórnunar, vinnusálfræði eða viðskiptafræði
Þekking og/eða reynsla af launavinnslu er æskileg
Reynsla af störfum við mannauðsmál er æskileg
Þekking á Orra, launakerfi ríkisins og/eða Vinnustund er kostur
Góð greiningarfærni og færni í framsetningu gagna
Góð samskiptafærni, jákvæðni og sveigjanleiki
Nákvæmni og skipulagshæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð almenn tölvukunnátta
Gott vald á íslensku og ensku
Áhugi á náttúruvernd og umhverfismálum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal henni fylgja ítarlegt yfirlit um menntun og starfsferil ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um Náttúruverndarstofnun:
Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarðsins. Að staðaldri starfa um 100 manns hjá stofnuninni en yfir sumartímann fer starfsmannafjöldi yfir 200. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
NVS
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðs- og launafulltrúi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.01.2026
Umsóknarfrestur
09.02.2026