Þjónustuaðili
NVS
Upplýsingar um starf
Starf
Landverðir - sumarstörf
Staðsetningar
Vesturland
Höfuðborgarsvæðið
Vestfirðir
Suðurland
Austurland
Suðurnes
Norðurland eystra
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.01.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026
Landverðir - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að ganga til liðs við frábæran hóp landvarða sem starfa á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum víðs vegar um landið.
Sem landvörður tekur þú þátt í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun og varðveislu náttúrunnar. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, leiðbeina og fræða gesti um náttúru landsins, fylgjast með ástandi umhverfisins og leggja sitt af mörkum til að tryggja að Ísland verði áfram einstakur staður. Landverðir gegna lykilhlutverki í að fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana.
Starfið býður upp á einstaka upplifun og tækifæri til að kynnast mikilfenglegri náttúru landsins á nýjan hátt, um leið og þú stuðlar að umhverfis- og náttúruvernd. Ef þú ert einstaklingur sem hefur ástríðu fyrir náttúrunni, ert lausnamiðaður, góður í samskiptum og tilbúinn að leggja þig fram við að vernda umhverfið, þá gæti landvarðarstarfið verið fullkomið fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
Störf landvarða eru fjölbreytt og áherslur ólíkar eftir starfsstöðvum en flest verkefni eiga það sameiginlegt að vera skemmtileg og lífleg. Á meðal helstu verkefna má nefna:
Samskipti við gesti þar sem lögð er áhersla á miðlun upplýsinga og fræðslu, meðal annars í formi fræðslugangna og barnastunda
Umsjón og eftirlit með starfssvæðum ásamt vöktun náttúrufars til að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu svæðanna.
Viðhald innviða, s.s. merking gönguleiða, umhirða svæða og ræsting.
Viðbrögð við óvæntum aðstæðum, þar með talið slysum.
Eftir aðstæðum á hverri starfsstöð geta verkefni landvarða einnig falist í:
Afgreiðslu og upplýsingagjöf í gestastofum.
Skálavörslu á hálendi.
Aðstoð við verkefni sjálfboðaliða.
Smærri framkvæmdum og öðrum tilfallandi verkefnum.
Eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum og viðburðum
Hæfniskröfur
Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að miðla upplýsingum á áhrifaríkan hátt.
Sterk þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun við fjölbreyttar áskoranir.
Umhverfisvitund, verkkunnátta og áreiðanleiki með stundvísi að leiðarljósi.
Góð skipulagsfærni og hæfni til að starfa undir álagi
Landvarðaréttindi og gild ökuréttindi
Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur en boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor.
Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem tengist verkefnum landvarða, t.d. náttúrutúlkun er mikill kostur
Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.
Reynsla af útivist og fjallamennsku, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsögn eru kostir.
Á Breiðamerkursandi og í Kverkfjöllum er menntun eða reynsla af ferðum á skriðjökla kostur.
Á hálendisstöðvum er starf með björgunarsveitum sem og reynsla af akstri breyttra jeppa kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Starfssvæðin eru eftirfarandi:
Snæfellsjökulsþjóðgarður - þjóðgarðsmiðstöðin Hellissandi og gestastofan á Malarrifi
Vesturland
Norðanverðir Vestfirðir (Friðlandið á Hornströndum og gestastofa á Ísafirði)
Sunnanverðir Vestfirðir (Vatnsfjörður, Látrabjarg og Dynjandi)
Norðurland (Mývatnssveit, Goðafoss og Gígur gestastofa)
Gerpissvæði og láglendi á austurlandi
Dyrhólaey og Skógafoss
Kerlingafjöll, Hveravellir, Gullfoss og Geysir
Friðland að Fjallabaki, Hrauneyjar og Þjórsárdalur
Suðvesturland (höfuðborgarsvæði og Reykjanesskagi)
Vatnajökulsþjóðgarður
Jökulsárgljúfur
Skaftafell
Breiðamerkursandur (Jökulsárlón)
Askja (Herðubreiðarlindir, Drekagil, Holuhraun, Ódáðahraun)
Krepputunga, Kverkfjöll, Hvannalindir og Snæfell og Snæfellsstofa á Skriðuklaustri í Fljótsdal
Lakagígar, Eldgjá/Langisjór, Hrauneyjar/Tungnaáröræfi og Nýidalur og Skaftárstofa á Kirkjubæjarklaustri
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 þegar starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og sá hluti Umhverfisstofnunar sem sneri að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun sameinuðust í nýja stofnun. Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar.
Um er að ræða fullt starf og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026
Þjónustuaðili
NVS
Upplýsingar um starf
Starf
Landverðir - sumarstörf
Staðsetningar
Vesturland
Höfuðborgarsvæðið
Vestfirðir
Suðurland
Austurland
Suðurnes
Norðurland eystra
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.01.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026