Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lands­réttur

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður dómara í Landsrétti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.01.2026

Umsóknarfrestur

23.01.2026

Aðstoðarmaður dómara í Landsrétti

Landsréttur auglýsir laust til umsóknar starf löglærðs aðstoðarmanns dómara við Landsrétt.

Löglærðir aðstoðarmenn dómara sinna lögfræðilegum verkefnum og aðstoða dómara réttarins í störfum þeirra í samræmi við ákvörðun forseta réttarins, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 50/2016. Meðal helstu verkefna er auk aðstoðar við dómara, vinna við dómareifanir, úrvinnsla kærumála sem og lögfræðileg greining mála sem til úrlausnar eru fyrir réttinum.

Hæfniskröfur

  • Embættispróf í lögfræði eða grunnnám ásamt meistaraprófi í lögum.

  • Góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli er nauðsynleg.

  • Góðir skipulagshæfileikar, hæfni til að vinna sjálfstætt og færni í mannlegum samskiptum.

  • Þekking og reynsla á sviði réttarfars er æskileg.

  • Reynsla af greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna er æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.

Þeir sem áhuga hafa á starfinu eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur.

Áskilið er að umsóknir og fylgigögn berist rafrænt á netfangið landsrettur@landsrettur.is. Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði frá birtingu auglýsingar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erna Sigríður Sigurðardóttir

skrifstofustjóri Landsréttar

Tölvupóstur: erna.s.sigurdardottir@landsrettur.is

Sími: 432-5300

Þjónustuaðili

Lands­réttur

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður dómara í Landsrétti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.01.2026

Umsóknarfrestur

23.01.2026