Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Umbra - þjónustumið­stöð Stjórn­ar­ráðsins

Upplýsingar um starf

Starf

Sviðsstjóri almennrar þjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

15.04.2026

Sviðsstjóri almennrar þjónustu

Viltu leiða þjónustu sem skiptir máli fyrir alla stjórnsýsluna?

Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga til að stýra þjónustusviði stofnunarinnar. Um er að ræða lykilstöðu þar sem viðkomandi leiðir þjónustu sem styður daglega starfsemi ráðuneyta og annarra ríkisaðila.

Um starfið
Sviðsstjóri almennrar þjónustu ber ábyrgð á rekstri og þróun fjölbreyttrar þjónustu, þar á meðal:

  • Þjónustuveri fyrir notendur Ísland.is og símsvörun fyrir ráðuneyti

  • Öryggisakstri ráðherra

  • Fræðsluþjónustu fyrir ráðuneyti (Stjórnarráðsskólinn)

Sviðsstjóri ber ábyrgð á að þjónustan sé skilvirk, áreiðanleg og í takt við þarfir notenda og leiðir þróun og umbætur á þjónustu.
Starfið felur í sér náið samstarf við önnur svið innan Umbru og virka þátttöku í stefnumótun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og þróa starfsemi sviðsins og stjórnun þess

  • Tryggja gæði, samræmi og framúrskarandi þjónustu

  • Greina tækifæri til umbóta og aukins samrekstrar þvert á ráðuneyti

  • Fylgja eftir árangri lykilmælikvarða og þjónustugæðum

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af rekstri þjónustu og stjórnun

  • Sterk leiðtogahæfni og þjónustumiðuð hugsun

  • Góð greiningar- og skipulagshæfni

  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni

  • Þekking á opinberu umhverfi er kostur

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lea Kristín Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: leakristin@intellecta.is

Sigríður Svava Sandholt

Tölvupóstur: sigridur@intellecta.is

Þjónustuaðili

Umbra - þjónustumið­stöð Stjórn­ar­ráðsins

Upplýsingar um starf

Starf

Sviðsstjóri almennrar þjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

15.04.2026