
Þjónustuaðili
Mannréttindastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í rekstri og upplýsingamiðlun - Mannréttindastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
09.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026
Sérfræðingur í rekstri og upplýsingamiðlun - Mannréttindastofnun Íslands
Mannréttindastofnun Íslands auglýsir lausa til umsóknar fjölbreytta stöðu sérfræðings. Starfið felur í sér lykilverkefni tengd rekstri, fjármálum, áætlanagerð og upplýsingamiðlun. Við leitum að drífandi og fjölhæfum einstaklingi með breiða þekkingu og reynslu og hugarfar grósku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstraráætlanagerð og fjármálaumsýsla
Bókhald, uppgjör og samskipti við Fjársýslu ríkisins
Innkaup á rekstrarvörum
Umsjón með húsnæðismálum og samningagerð
Umsjón með þróun vefsíðu og samfélagsmiðla
Textagerð og efnissköpun, m.a. fyrir stafræna miðla
Aðkoma að skjalavistun og upplýsingatæknimálum
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Haldbær reynsla af fjármálum og rekstri
Reynsla af samningagerð er kostur
Reynsla af textagerð og vefumsjón
Framúrskarandi samskiptahæfni og hugarfar grósku
Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Góð tölvukunnátta
Áhugi á mannréttindum
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er sveigjanlegt og getur verið allt að 100% eftir samkomulagi. Öll sem hafa áhuga eru hvött til að sækja um en við ráðningu verður tekið mið af lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 og lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem gerðar eru. Um laun fer samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert. Umsókn gildir í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét María Sigurðardóttir
Tölvupóstur: margret.m.sigurdardottir@mannrettindi.is
Geirlaug Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: geirlaug@hagvangur.is

Þjónustuaðili
Mannréttindastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í rekstri og upplýsingamiðlun - Mannréttindastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
09.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026