Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í þróun gagnavöruhúss

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026

Sérfræðingur í þróun gagnavöruhúss

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan einstakling til að taka þátt í uppbyggingu nýs gagnavöruhúss sem byggir á Data Vault aðferðafræðinni.

Starfið er innan deildar þróunar og gagnahögunar á sviði upplýsingatækni sem ber ábyrgð á þróun og rekstri tölvukerfa og gagnaumhverfis bankans. Þar starfar öflugt teymi sérfræðinga í hugbúnaðarþróun, gagnasamþættingu og DevOps. Áhersla er lögð á stöðugar umbætur, trausta og nútímalega gagnainnviði og gott samstarf við hagaðila.

Verið er að þróa nýtt gagnavöruhús sem mun sameina gögn úr lykilkerfum bankans og leysa eldri lausnir af hólmi. Viðkomandi tekur þátt í hönnun og þróun gagnainnviða sem styðja við greiningar og upplýsta ákvarðanatöku.

Mikilvægast er að viðkomandi hafi góðan tæknilegan grunn, áhuga á gagnavinnslu og innviðum ásamt vilja til að læra og þróast í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun og þróun gagnavöruhúss

  • Þróun gagnaflæðis og gagnasamþætting

  • Gagnalíkanagerð og uppbygging gagnaferla

  • Tryggja gæði og áreiðanleika gagna

  • Samstarf við greiningar- og þróunarteymi

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi

  • Þekking og reynsla á SQL og gagnagrunnum

  • Þekking og reynsla af ETL/ELT eða annarri gagnavinnslu

  • Reynsla eða þekking á Data Vault gagnavöruhúsum er kostur

  • Forritunarkunnaátta sem nýtist í starfi t.d. C# eða Python er kostur

  • Áræðni, heiðarleika og metnað til að ná árangri í starfi

  • Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu

  • Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða fullt starf með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elín Rut Guðnadóttir

forstöðumaður þróunar og gagnahögunar

Tölvupóstur: elin.rut.gudnadottir@sedlabanki.is

Árni Ragnar Stefánsson

mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar

Tölvupóstur: mannaudur@sedlabanki.is

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í þróun gagnavöruhúss

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026