Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Staða sérfræðings á sviði jafnréttismála á skrifstofu Women, Business and the Law hjá Alþjóðabankanum í Washington, D.C.

Staðsetning

Erlendis

Starf skráð

13.03.2026

Umsóknarfrestur

27.03.2026

Staða sérfræðings á sviði jafnréttismála á skrifstofu Women, Business and the Law hjá Alþjóðabankanum í Washington, D.C.

Alþjóðabankinn óskar eftir að ráða sérfræðing á sviði jafnréttismála í höfuðstöðvum bankans í Washington, D.C. Sérfræðingurinn mun starfa á skrifstofu Women, Business and the Law (WBL) sem vinnur að rannsóknum á efnahagslegum tækifærum kvenna, einna helst í formi úttekta og mælinga á laga- og viðskiptaumhverfi ríkja. Sérfræðingurinn mun leiða hönnun og innleiðingu gagnaöflunar á sviði efnahagslegrar valdeflingar kvenna, og aðstoða skrifstofustjóra við verkefnastjórn og stefnumótun. Þá er sérfræðingnum ætlað að styrkja samstarf við hagaðila, bæði hjá hinu opinbera og einkageiranum, í tengslum við gagnaöflun og málsvarastarf.

Hæfniskröfur

  • Háskólagráða á framhaldsstigi í lögfræði, hagfræði, opinberri stjórnsýslu, gagnavísindum, alþjóðasamskiptum, kynjafræði eða skyldum greinum.

  • Gerð er krafa um að umsækjandi hafi að minnsta kosti fimm ára viðeigandi starfsreynslu á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, stefnumótunar eða lögfræði.

  • Ríkur skilningur á aðferðafræði WBL og reynsla af samanburðargreiningum á lögum og stefnum, sérstaklega í tengslum við bestu starfsvenjur og lagasetningu á sviði jafnréttismála.

  • Krafa um frumkvæði, leiðtogahæfileika og getu til að starfa á skilvirkan hátt með fjölbreyttum samstarfsaðilum í fjölmenningarlegu umhverfi.

  • Framúrskarandi hæfni á ensku í ræðu og riti er skilyrði. Færni í fleiri tungumálum er kostur.

  • Mjög gott vald á Microsoft Excel, Word, PowerPoint og umsjá gagnagrunna. Hæfni í notkun STATA er æskileg.

  • Hæfni í forritunarmáli á borð við Python eða R, þekking á JavaScript og SQL og notkun gervigreindarlausna er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Alþjóðabankinn tekur ákvörðun um ráðningu en ráðið verður til tveggja ára, frá og með sumrinu 2026, með möguleika á framlengingu. Sérfræðingurinn verður starfsmaður Alþjóðabankans og um launakjör fer samkvæmt reglum bankans.

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2026. Umsókn skal vera á ensku og skal umsækjandi senda inn meðfylgjandi eyðublað Alþjóðabankans ásamt ferilskrá og kynningarbréfi til utanríkisráðuneytisins í tölvupósti á netfangið wbg@mfa.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Meðfylgjandi er einnig ítarleg starfslýsing frá Alþjóðabankanum. Nánari upplýsingar veitir Þórarinna Söebech á netfanginu throunarsamvinna@utn.is.

Öll kyn eru hvött til að sækja um framangreint starf.

Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2026

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Staða sérfræðings á sviði jafnréttismála á skrifstofu Women, Business and the Law hjá Alþjóðabankanum í Washington, D.C.

Staðsetning

Erlendis

Starf skráð

13.03.2026

Umsóknarfrestur

27.03.2026