Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Laust embætti sýslumanns
Staðsetning
Óstaðbundið
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026
Laust embætti sýslumanns
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumanns sem verður stofnað 1. janúar 2027 við sameiningu núverandi níu sýslumannsembætta. Leitað er að framsýnum leiðtoga með skýra sýn og getu til að leiða sameininguna, tryggja samfellu í lögbundinni starfsemi og móta sameinað embætti á grunni reynslu, þekkingar og styrkleika núverandi embætta, með það að markmiði m.a. að fjölga störfum á landsbyggðinni og stuðla að jöfnu aðgengi að opinberri þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sýslumaður fer með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði eftir því sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Auk lögbundinna verkefna annast sýslumaður framkvæmd verkefna fyrir aðrar ríkisstofnanir eða stjórnvöld samkvæmt samningi.
Sýslumaður fer með yfirstjórn embættisins og ber ábyrgð á stefnumótun, skipulagi starfsemi, mannauðsstjórnun og fjárhagslegum rekstri þess. Þá ber sýslumaður ábyrgð á að starfsemi embættisins sé í samræmi við lög og önnur stjórnvaldsfyrirmæli. Um nánari lýsingu á hlutverki sýslumanns vísast til 2. gr. laga um sýslumann.
Stofnun nýs sýslumannsembættis er umfangsmikið breytingaverkefni sem felur í sér skipulagslegar, stjórnsýslulegar og mannauðstengdar áskoranir. Í hlut sýslumanns fellur, í samstarfi við dómsmálaráðuneytið, að leiða undirbúning og innleiðingu sameiningar embættanna, bæði fyrir og eftir gildistöku laganna, þar á meðal með því að móta skipulag embættisins, verkaskiptingu milli starfsstöðva og tryggja samfellu í lögbundinni starfsemi.
Sýslumaður ber ríka ábyrgð á að leiða starfsfólk í gegnum breytingaferlið af festu, sanngirni og fagmennsku, stuðla að trausti og góðum starfsanda og tryggja stöðugleika í rekstri embættisins á umbreytingatímanum. Að lokinni innleiðingu mun hlutverk sýslumanns í auknum mæli beinast að stöðugum rekstri, festu í stjórnsýslu og markvissri, samfelldri þróun starfsemi embættisins. Í því felst að byggja ofan á þá innviði sem mótaðir verða á umbreytingatímanum, með áherslu á fyrirsjáanleika, fagmennsku og stöðugar umbætur.
Þá er gert ráð fyrir að sýslumaður taki þátt í þróun löggjafar, stjórnsýsluframkvæmdar og verkefna embættisins á næstu árum með ráðuneytinu og í samráði við haghafa og starfsfólk embættisins. Í því felst jafnframt forysta í umbóta- og þróunarverkefnum, meðal annars á sviði stafrænnar þróunar, með áherslu á gæði, skilvirkni og samræmi í þjónustu.
Hjá sýslumanni munu starfa um 250 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum víða um land. Ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 1. mgr. 3. gr. laga um sýslumann auk eftirfarandi hæfniskrafna:
Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun.
Rík samskipta- og samstarfshæfni, ásamt hæfni til að leiða faglegt samstarf við ólíka hagaðila.
Þekking og reynsla á sviði rekstrar og áætlanagerðar.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
Þekking og yfirsýn á verkefnum sýslumanns er kostur.
Þekking og reynsla af umbóta- og þróunarstarfi er kostur.
Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Dómsmálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Samkvæmt 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I í lögum um sýslumann, er ráðherra heimilt að auglýsa og skipa sýslumann nýs embættis fyrir 1. janúar 2027 til að hefja undirbúning gildistöku laganna. Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Um laun og starfskjör sýslumanns fer samkvæmt 39. gr. a. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir skýra og hnitmiðaða grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 1. mgr. 3. gr. laga um sýslumann og auglýsingunni auk annarra upplýsinga sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf sýslumanns.
Skal senda umsókn á starf@dmr.is. Miðað er við að skipað verði í embættið eigi síðar en 1. júlí 2026.
Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.
Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Berglind Bára Sigurjónsdóttir
skrifstofustjóri skrifstofu borgaralegra réttinda
Tölvupóstur: berglind.bara.sigurjonsdottir@dmr.is
Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Laust embætti sýslumanns
Staðsetning
Óstaðbundið
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026