Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Samskiptastefna

Stafræn heilsa er miðstöð þróunar, þjónustu og nýsköpunar fyrir heilbrigðisþjónustu. Markmið okkar í samskiptum er að efla skilning og traust á stafrænni umbreytingu heilbrigðiskerfisins, byggja upp kraftmikið samstarf við nýsköpunarsamfélagið og styðja við sameiginlega sýn þess heilbrigðiskerfis sem við erum að byggja til framtíðar.

Gildin okkar

Þrjú gildi leiða samskipti okkar:

Traust
Við erum fagleg, áræðin og opin í allri upplýsingamiðlun og miðlun er sjálfsagður hlutur í öllu okkar starfi.

Samræmi
Við komum fram sem ein heild og notum sama raddblæ í allri miðlun, hvort sem er á faglegum vettvangi, á vef eða í beinum samskiptum við samstarfsaðila.

Samstarf
Með opinni upplýsingagjöf, skýrri forgangsröðun og virku samtali sköpum við grundvöll fyrir stöðuga nýsköpun í stafrænni heilbrigðisþjónustu og tengjum heilbrigðiskerfið betur við upplýsingatæknisamfélagið.

Miðlun og markhópar

Samskipti Stafrænnar heilsu beinast að nokkrum meginhópum:

Heilbrigðisstarfsfólk
Sem best þekkir raunverulegar þarfir skjólstæðinga

Nýsköpunar- og upplýsingatæknisamfélagið
Þróunaraðilar og fyrirtæki sem byggja upp og reka lausnir fyrir heilbrigðiskerfið.

Heilbrigðisstofnanir og opinberir aðila
Sem nýta sameiginlega innviði og stafræna þróun og nýta þjónustu og lausnir Stafrænnar heilsu

Almenningur og skjólstæðingar
Mikilvægt að þessi hópur sé upplýstur um allar breytingar og nýjungar sem skipta hann máli og hafa bein áhrif á upplifun og þjónustu

Hvernig miðlum við upplýsingum?

Vefur Stafrænnar heilsu er okkar aðalvettvangur. Þar má finna fréttir af verkefnum, forgangsröðun, skjölun, stefnur og er vefurinn einnig fyrsta skref í að eiga í samskiptum við Stafræna heilsu. Við notum samfélagsmiðla Stafrænnar heilsu þegar við á til að ná til markhópa okkar og tökum virkan þátt í viðburðum, ráðstefnum o.fl.

Raddblær

Raddblær okkar er skýr, faglegur og aðgengilegur. Við tölum mannamál, af heiðarleika og gagnsæi, og með virðingu fyrir sérþekkingu viðmælenda okkar. Við forðumst flókið stjórnsýslumál og óþarfa tæknimál í samskiptum við almenning, en nýtum nákvæm tæknihugtök í samtali við fagsamfélagið. Allt efni er skrifað með viðtakandann í huga og skal uppfylla aðgengisviðmið.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu