Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Stafræn heilsa óskar eftir tilboðum í upplýsingatækniþjónustu

24. september 2026

Fjársýslan hefur fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins óskað eftir tilboðum í upplýsingatækniþjónustu fyrir Stafræna heilsu og Sjúkratryggingar Íslands

Um er að ræða rammasamning um hugbúnaðarþróun, rekstrarþjónustu og ráðgjöf. Kaup á tilbúnum lausnum falla utan samningsins og verða gerð með öðrum leiðum.

Samningurinn tryggir aðgang að hæfum sérfræðingum og birgjum og styður við þróun, rekstur og innleiðingu stafrænna lausna í heilbrigðiskerfinu.

„Stafræn heilsa er þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið og gegnir mikilvægu hlutverki við eflingu innviða og markvissrar þróunar og innleiðingar starfrænna lausna í heilbrigðiskerfinu. Rammasamningur sem þessi fyrir Stafræna heilsu og Sjúkratryggingar Íslands mun styrkja svo um munar getu þessara lykilstofnana stofnana til að rækja hlutverk sitt gagnvart notendum og veitendum heilbrigðisþjónustu, auka skilvirkni og stuðla að auknu öryggi, jafnt rekstrarlegu öryggi, upplýsingaöryggi og öryggi sjúklinga“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Breiður hópur sérfræðinga

Samningurinn nær yfir fjölbreytt hlutverk, bæði umsýslu og tæknileg. Þar á meðal eru verkefnastjórar, klínískir ráðgjafar, öryggissérfræðingar, prófarar, UX/UI-sérfræðingar, forritarar og DevOps-sérfræðingar. Bæði sjálfstætt starfandi sérfræðingar og launþegar geta tekið þátt.

Sveigjanleg innkaup

Kaup innan samningsins fara fram með tvennum hætti. Þegar verkefni kallar á einn sérfræðing er notast við bein kaup, þar sem stigahæsti sérfræðingurinn er valinn. Þegar verkefni er umfangsmeira eða óljósara er notast við örútboð.

Áhersla á gæði og öryggi

Gerðar eru skýrar lágmarkskröfur til sérfræðinga, meðal annars um reynslu af þróun og rekstri lausna í heilbrigðistækni, ásamt þekkingu á agile vinnubrögðum, öryggi, persónuvernd og fleira. Frammistaða er metin meðan á verkefni stendur og við lok þess, meðal annars út frá kóðarýni, prófunum og skjölun.

Allt að fjögurra ára samningstími

Samningurinn gildir í eitt ár í senn og er heimilt að framlengja hann þrisvar sinnum, þannig að heildartími getur orðið allt að fjögur ár og er umfangið um það bil einn milljarður kr. á ári.

Útboðsgögn og skilafrestur

Útboðsgögn verða afhent 21. september 2026 kl. 09:00. Tilboðum skal skila fyrir 21. október 2026 kl. 12:00. Nánari upplýsingar má finna á útboðsvefnum

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu