Stafræn heilsa og framtíðin sem við byggjum saman
4. nóvember 2026
Stafrænar lausnir heilbrigðisþjónustu tala ekki alltaf saman. Upplýsingar fylgja ekki alltaf fólki á milli stofnana og sömu vandamálin eru leyst oftar en einu sinni. Það kostar tíma og fjármuni og gerir bæði starfsfólki og almenningi erfiðara fyrir. Á sama tíma skapa tækniframfarir sífellt ný tækifæri til að bæta þjónustu, létta álagi á starfsfólkið og nýta fjármuni betur. Til að nýta þau þurfum við að vinna betur saman.

Greinin var upphaflega birt í Morgunblaðinu 3. nóvember 2026.
Íslenskt heilbrigðiskerfi stendur á sterkum grunni. Þar starfar öflugt fagfólk, framsýn heilbrigðisfyrirtæki og öflugir rannsóknar- og nýsköpunaraðilar sem hafa á undanförnum árum stuðlað að miklum framförum í stafrænni heilbrigðisþjónustu. Víða hafa orðið til lausnir sem bæta þjónustu og einfalda störf, en tækifærin til frekari framþróunar eru mikil. Með auknu samstarfi, samhæfingu og sameiginlegri forgangsröðun getum við byggt á þeim árangri sem þegar hefur náðst og hraðað innleiðingu lausna sem skapa verðmæti fyrir bæði notendur þjónustunnar og heilbrigðiskerfið í heild.
Stafræn heilsa tók til starfa í ársbyrjun til að takast á við þessar áskoranir, ekki með því að þróa allar lausnir, heldur til að skapa betri forsendur fyrir samstarfi, samhæfingu og nýsköpun. Allt til þess að skapa aðstæður fyrir enn betra heilbrigðiskerfi.
Sameiginleg sýn og skýrari forgangsröðun
Hlutverk Stafrænnar heilsu er að stuðla að markvissari stafrænni þróun heilbrigðisþjónustunnar. Það gerum við með því að samhæfa verkefni, bæta forgangsröðun á landsvísu, byggja upp sameiginlega innviði og stuðla að öruggu flæði gagna milli kerfa og stofnana.
Samhliða þessari þróun ber Stafræn heilsa ábyrgð á rekstri miðlægra kerfa sem heilbrigðiskerfið reiðir sig á daglega. Öruggur og áreiðanlegur rekstur þeirra er grunnurinn sem öll frekari þróun byggir á.
Í stað þess að hver stofnun leysi sömu tæknilegu áskoranirnar viljum við byggja á sameiginlegum grunni. Þannig nýtast fjármunir betur, dregið er úr tvíverknaði og nýjar lausnir eiga auðveldara með að ná fótfestu. Markmiðið er ekki að allir noti sömu kerfin, heldur að ólík kerfi geti unnið saman, óháð því hver þróaði þau eða rekur.
Með stofnun Stafrænnar heilsu voru verkefni og sérþekking sem áður voru dreifð á milli stofnana sameinuð undir einu þaki. Markmiðið er að skapa betri yfirsýn, skýrari forgangsröðun og nýta betur þá fjármuni sem fara í stafræna þróun heilbrigðiskerfisins.
Við gerum þetta ekki sjálf
Stafræn heilsa á ekki að byggja eða reka allt sjálf. Hlutverk okkar er að leggja sameiginlegan grunn og skapa innviði, staðla og leikreglur sem gera stofnunum og fyrirtækjum kleift að þróa og innleiða góðar lausnir og vaxið og dafnað um leið.
Stór hluti þróunar stafrænna heilbrigðislausna á að vera í höndum einkafyrirtækja í samstarfi við heilbrigðisstofnanir. Það er ekki málamiðlun heldur forsenda árangurs enda hafa fyrirtæki hér á landi um áratugaskeið þróað lausnir sem heilbrigðisstarfsfólk reiðir sig á daglega.
Nýsköpunarsamfélagið býr yfir hugviti, þekkingu og hraða sem við þurfum að nýta og styðja við. Samstarf hins opinbera og einkageirans er lykillinn að heilbrigðiskerfi framtíðarinnar og Stafræn heilsa á að greiða fyrirtækjum leið að heilbrigðiskerfinu, ekki keppa við þau. Við viljum að fyrirtæki geti einbeitt sér að því að þróa góðar lausnir í stað þess að þurfa að eyða tíma sínum í gegnum stjórnsýsluna. Með sameiginlegum stöðlum, kröfum og ferlum verða leikreglurnar skýrar og þannig verður einfaldara fyrir fyrirtæki að þróa lausnir. Með betri samhæfingu og forgangsröðun skapast tækifæri til að þróa lausnir sem nýtast fleiri en einni stofnun, á landsvísu.
Við viljum opna heilbrigðiskerfið betur fyrir nýsköpun. Góð hugmynd á alltaf að eiga möguleika á að verða að raunverulegri lausn, hvort sem hún kemur frá heilbrigðisstarfsfólki, sprotafyrirtæki eða rótgrónu fyrirtæki.
Fólk færir fjöll, ekki tæknin
Stafræn umbreyting heilbrigðisþjónustunnar snýst fyrst og fremst ekki um hugbúnað og tæknilega innviði, hún snýst um fólk.
Notendur eiga ekki að þurfa að segja sjúkrasögu sína aftur og aftur. Starfsfólk á að hafa réttar upplýsingar og tæknin á ekki að tefja það. Minni tími á að fara í umsýslu og meiri tími í að sinna fólki.
Við þurfum að nýta opinbert fé betur og hætta að leysa sömu vandamálin aftur og aftur, tryggja að fjárfestingar nýtist sem flestum og skapa aðstæður þar sem góðar hugmyndir verða að raunverulegum lausnum.
Til þess þurfum við þekkingu starfsfólks, reynslu stofnana, hugvit fyrirtækja og sjónarmið þeirra sem nýta þjónustuna. Enginn einn aðili býr yfir öllum svörunum eða leysir þetta á eigin vegum. Stafræn heilsa mun ekki leysa allar áskoranir heilbrigðiskerfisins. Og það sem hún leysir leysir hún ekki ein.
Okkar hlutverk er að leggja grunninn, tengja saman kraftmikið fólk og fyrirtæki og greiða leiðina því að heilbrigðiskerfi framtíðarinnar byggjum við aðeins saman.
Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu.