Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Staðfest verklag um forgangsröðun stafrænna verkefna á landsvísu

17. ágúst 2026

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest verklag Stafrænnar heilsu um forgangsröðun og flæði stafrænna heilbrigðisverkefna á landsvísu.

Verklagið felur Þróunarráði Stafrænnar heilsu að taka formlegar ákvarðanir um samþykki, ræsingu og eftirlit verkefna sem berast í Verkefnagátt.

Í ráðinu sitja forstöðumaður Stafrænnar heilsu, yfirlæknir og yfirhjúkrunarfræðingur Stafrænnar heilsu. Þannig er tryggt að við ákvörðun um verkefni séu þau skoðuð frá stjórnunarlegu, klínísku og tæknilegu sjónarhorni.

Ráðið mun flokka hvert verkefni út frá þremur víddum: áhrifum og ávinningi, fýsileika og mikilvægi. Notað verður svokallað MoSCoW-graf sem forgangsraðar verkefnum í fjóra flokka: nauðsynlegt, mjög æskilegt, æskilegt ef svigrúm er til og bíður að sinni.

Gagnsæi verður lykilstef í vinnu ráðsins og allar ákvarðanir verða skráðar og rekjanlegar. Heilbrigðisstofnanir halda áfram að forgangsraða sínum eigin verkefnum áður en þau berast í gáttina og sú röðun verður tekin til greina í heildarmati ráðsins.

Þróunarráð hittist að lágmarki á tveggja vikna fresti og endurskoðar heildarforgangsröðun verkefnaskrár ársfjórðungslega.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu