Gervigreindarstefna Stafrænnar heilsu birt
11. ágúst 2026
Ný gervigreindarstefna Stafrænnar heilsu hefur nú verið birt en þar er afstaða Stafrænnar heilsu til nýtingar gervigreindar í heilbrigðisþjónustu mörkuð og sett fram stefnumið og grunngildi sem sú nýting skal byggjast á.
Stefnan tekur til allrar nýtingar gervigreindar í innri starfsemi Stafrænnar heilsu og til þeirrar þjónustu sem einingin veitir heilbrigðisstofnunum, hvort sem gervigreind kemur við sögu í klínísku starfi, stoðþjónustu, stjórnun eða rannsóknum. Gagnvart öðrum stofnunum er stefnan leiðbeinandi og hver stofnun ákveður hvernig hún er innleidd og staðfærð.
Stefnuna ásamt öðrum stefnum og handbókum Stafrænnar heilsu má nálgast hér.
