Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Bættir ferlar vegna liðskiptaaðgerða

25. ágúst 2026

Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að því með Sjúkratryggingum Íslands að bæta ferla og einfalda leið skjólstæðinga sem bíða eftir liðskiptaaðgerðum.

Sjúkratryggingar hafa síðustu þrjú ár boðið út slíkar aðgerðir til aðila í einkarekstri til að auka afkastagetu og vinna niður biðlista. Áður var gerð krafa um að öll sem færu í aðgerð hjá einkaaðilum færu fyrst í skoðun og heildarmat á opinberri heilbrigðisstofnun, sem olli tvíverknaði og lengri biðtíma. Þeirri kröfu var aflétt í janúar 2026 og hefur það skilað bæði auknu hagræði og styttri biðtíma.

Einnig var unnið að því að bæta og einfalda upplýsingagjöf til notenda. Frá því í mars hafa skjólstæðingar getað fylgst með skráningu sinni á biðlista fyrir liðskiptaaðgerð á Mínum síðum á Ísland.is og hefur það mælst vel fyrir. Jafnt og þétt bætast við upplýsingar um bið eftir fleiri aðgerðum, til dæmis augnsteinaaðgerðum. Þá geta öll sem bíða eftir aðgerð á Landspítala nú nálgast sömu upplýsingar um sína skráningu.

Fyrir áhugasöm má finna mælaborð á vef Embættis landlæknis sem sýnir þróun biðtíma og fjölda liðskiptaaðgerða.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu