Áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu í Samráðsgátt
30. júní 2026
Áformin marka mikilvægt skref í átt að nútímalegra, öruggara og samhæfðara heilbrigðiskerfi

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu í Samráðsgátt stjórnvalda, ásamt frummati á áhrifum lagasetningar. Frumvarpinu er ætlað að skapa heildstæða lagaumgjörð um starfsemi Stafrænnar heilsu og sameiginlega stafræna innviði heilbrigðiskerfisins.
Markmiðið er öruggari og samhæfðari uppbygging innviða, betri vernd heilbrigðisupplýsinga, bætt upplýsingaflæði og samfelldari þjónusta við sjúklinga, ásamt sterkari forsendum fyrir nýsköpun og stefnumótun.
Áformin marka mikilvægt skref í átt að nútímalegra, öruggara og samhæfðara heilbrigðiskerfi þar sem upplýsingar fylgja notandanum betur, þjónusta verður samfelldari og heilbrigðisstarfsfólk fær betri forsendur til að veita rétta þjónustu á réttum tíma.
Frumvarpið sem áformin boða mun meðal annars hafa það að markmiði að styðja við framkvæmd Heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og bregðast við þörf á skýrara stjórnskipulagi og aukinni samhæfingu sem greind var í mati ráðuneytisins á stafrænni þróun heilbrigðiskerfisins árið 2025.
Frestur til að skila umsögnum er til 13. júlí. Við hvetjum alla haghafa til að kynna sér áformin og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
