Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 29.6.–13.7.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-108/2026

Birt: 29.6.2026

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Áform um lagasetningu - frumvarp til laga um Stafræna heilsu

Málsefni

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu ásamt frummati á áhrifum lagasetningar.

Nánari upplýsingar

Áformin gera ráð fyrir frumvarpi til laga um Stafræna heilsu og sameiginlega stafræna innviði heilbrigðiskerfisins. Frumvarpinu er ætlað að styðja við framkvæmd Heilbrigðisstefnu til ársins 2030, stefnu um stafræna heilbrigðisþjónustu og aðra stefnumótun stjórnvalda á sviði stafvæðingar og heilbrigðismála. Jafnframt er því ætlað að leggja grunn að áframhaldandi þróun stafrænnar heilbrigðisþjónustu og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi á sviði heilbrigðisgagna og stafrænna heilbrigðislausna.

Í mati heilbrigðisráðuneytisins á stafrænni þróun heilbrigðiskerfisins árið 2025 kom fram að þörf væri á skýrara stjórnskipulagi, aukinni samhæfingu og sameiginlegri stefnumótun á sviði stafrænnar heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega var bent á að skortur væri á heildstæðri lagaumgjörð um þróun, rekstur og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins.

Markmið frumvarpsins er að skapa heildstæða lagaumgjörð um starfsemi Stafrænnar heilsu og leggja grunn að öruggri, samhæfðri og skilvirkri uppbyggingu og rekstri sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Jafnframt er markmiðið að efla öryggi og vernd heilbrigðisupplýsinga, bæta upplýsingaflæði innan heilbrigðiskerfisins, stuðla að samfelldri þjónustu við sjúklinga og styrkja forsendur fyrir nýsköpun, rannsóknir og þróun á sviði heilbrigðismála.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (26)

Umsjónaraðili

Stafræn heilsa

sh@hrn.is