Viðurkenndir rekstraraðilar - AEO
Hvað er AEO vottun
Íslensk fyrirtæki sem gegna hlutverki í alþjóðlegu vörukeðjunni og fullnægja settum skilyrðum og öryggisviðmiðum geta sótt um að hljóta AEO-vottun frá Skattinum.
AEO stendur fyrir „Authorised Economic Operator" og hefur verið nefnt „viðurkenndir rekstraraðilar“ á íslensku og er ætlað að auka öryggi alþjóðlegu vörukeðjunnar og greiða fyrir lögmætum viðskiptum og vörusendingum á milli landa.
Hvaða þýðingu hefur það að vera vottaður viðurkenndur rekstraraðili (AEO)?
Viðurkenndur rekstraraðili er vottunarferli sem byggir á SAFE regluverki Alþjóðatollastofnunarinnar.
Með AEO vottun hlýst viðurkenning á því að fyrirtækið njóti trausts innlendra og erlendra tollyfirvalda. Áhættugreining í tengslum við viðurkenningu fyrirtækis sem AEO-aðila á að stuðla að því að tollyfirvöld og viðskiptavinir geti frekar treyst því að fyrirtækið sé traustur hlekkur í vörukeðjunni. Vottunin er staðfesting á að fyrirtækið fylgi lögum og reglum og sé til fyrirmyndar í allri tollframkvæmd.
Umsókn um AEO-vottun hjá Skattinum er valkæð.
Vottunin er í boði fyrir:
Innflytjendur og útflytjendur
Farmflytjendur
Tollmiðlarar
Vörsluhafar (geymslur)
Framleiðendur
Skilyrði AEO-vottunar
Þau skilyrði sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að hljóta AEO-vottun má skipta upp í fimm megin flokka. Þessir flokkar eru:
Almenn skilyrði
Fullnægjandi gjaldþol
Fullnægjandi reglufylgni
Fullnægjandi reikningshalds- og aðfangakerfi
Fullnægjandi öryggiskröfur og vinnuferlar
Ávinningur af AEO
Fyrirtæki sem hlotið hafa AEO-vottun njóta alþjóðlegrar viðurkenningar. AEO fyrirtæki eru talin vera traustur og góður viðskiptavinur bæði innanlands og erlendis.
Ávinningur AEO vottaðra rekstraraðila felst einkum í auknu trausti tollyfirvalda á innra starfi þeirra og betri ímynd út á við. Beinn ávinningur birtist í breyttum áherslum við eftirlit sem leiða til þess að viðurkenndir rekstraraðilar munu sjaldnar falla undir reglubundið eftirlit. Gagnkvæmir viðurkenningarsamningar sem stefnt er að því að gera við helstu viðskiptalönd Íslands, munu þar að auki stuðla að vægari kröfum um upplýsingagjöf við útflutning.
Beinn ávinningur:
Vægari kröfur um upplýsingagjöf
Tilkynning um skoðun farms
Færri endur- og tollskoðanir
Forgangur ef um er að ræða skoðun
Mögulegt val á skoðunarstað
AEO-vottun hefur einnig í för með sér óbeinan ávinning:
Gæðamerki – traustur og góður viðskiptafélagi
Fyrirtækið innleiðir bestu starfsvenjur á sviði öryggismála
Aukin vitund um öryggismál og ferla
Betri yfirsýn yfir reksturinn
Aukið samstarf við skattinn og viðurkenning tollyfirvalda í öðrum ríkjum