Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Gjaldskrá þjónustugjalda

Gjalskrá fyrir innheimtu þjónustugjalda vegna tollafgreiðslu, tolleftirlits o.fl.

Gildissvið

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir um gjaldtöku vegna starfsemi tollstjóra sem er gjaldskyld samkvæmt tollalögum nr. 88/2005, með síðari breytingum.

Gjaldskyld starfsemi tollstjóra og ákvörðun gjalda

2. gr.

Í þessari grein er yfirlit yfir gjaldskylda starfsemi tollstjóra og ákvörðun gjalda vegna hennar.

Kostnaðarliðir eru launakostnaður, aksturskostnaður og annar kostnaður, sbr. 3.-5. gr.

Launakostnaður miðast við unnar vinnustundir samkvæmt reglum 3. gr., en þó er hann metinn sem fast gjald þegar um er að ræða tollafgreiðslu millilandafara, sbr. 1. og 2. tölulið þessarar greinar.

Aksturskostnað ber einungis að greiða í þeim tilvikum sem það er sérstaklega tekið fram í þessari grein.

2.1. Tollafgreiðslur skipa og flugvéla utan almenns tollafgreiðslutíma

Greiða ber kostnað við aðkomu- og brottfarartollafgreiðslur skipa og flugvéla í millilandaferðum utan almenns tollafgreiðslutíma.

Almennur tollafgreiðslutími er frá kl. 07 til 18 alla virka daga.

Tollafgreiðslugjöld samkvæmt þessum lið skulu vera sem hér segir:

A. Almenn tollafgreiðslugjöld

  1. Farþegavélar kr. 28.969,-

  2. Frakt-, ferju- og einkavélar kr. 8.277,-

  3. Skip, aðkomutollafgreiðsla kr. 24.831,-

  4. Skip, brottfarartollafgreiðsla kr. 12.415,-

B. Sérstök tollafgreiðslugjöld (stórhátíðardagar)

  1. Farþegavélar kr. 38.356,-

  2. Frakt-, ferju- og einkavélar kr. 10.959,-

  3. Skip, aðkomutollafgreiðsla kr. 32.877,-

  4. Skip, brottfarartollafgreiðsla kr. 16.438,-

Ef einn tollvörður annast aðkomutollafgreiðslu skips lækkar tollafgreiðslugjaldið um helming.

2.2. Tollafgreiðslur skipa og flugvéla utan tollhafna

Greiða ber kostnað við aðkomu- og brottfarartollafgreiðslu skipa og flugvéla í millilandaferðum sem tollstjóri heimilar að hafi fyrstu eða síðustu viðkomu hér á landi utan tollhafna.

Tollhafnir eru Reykjavík, Grundartangi, Akranes, Grundarfjörður, Ísafjörður, Skagaströnd, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Akureyri, Húsavík, Vopnafjörður, Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Egilsstaðir, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn, Keflavík, Keflavíkurflugvöllur, Hafnarfjörður og Kópavogur.

Tollafgreiðslugjöld samkvæmt þessum lið skulu vera sem hér segir:

A. Tollafgreiðslugjöld vegna tollafgreiðslu í dagvinnu tollvarða

  1. Farþegavélar kr. 17.156,-

  2. Frakt-, ferju- og einkavélar kr. 4.902,-

  3. Skip, aðkomutollafgreiðsla kr. 14.705,-

  4. Skip, brottfarartollafgreiðsla kr. 7.352,-

B. Tollafgreiðslugjöld vegna tollafgreiðslu í yfirvinnu tollvarða

  1. Farþegavélar kr. 28.969,-

  2. Frakt-, ferju- og einkavélar kr. 8.277,-

  3. Skip, aðkomutollafgreiðsla kr. 24.831,-

  4. Skip, brottfarartollafgreiðsla kr. 12.415,-

C. Tollafgreiðslugjöld vegna tollafgreiðslu á stórhátíðardögum

  1. Farþegavélar kr. 38.356,-

  2. Frakt-, ferju- og einkavélar kr. 10.959,-

  3. Skip, aðkomutollafgreiðsla kr. 32.877,-

  4. Skip, brottfarartollafgreiðsla kr. 16.438,-

Ef einn tollvörður annast aðkomutollafgreiðslu skips lækkar tollafgreiðslugjaldið um helming. Auk tollafgreiðslugjalds ber að greiða aksturskostnað þegar um er að ræða tollafgreiðslu skipa og flugvéla utan tollhafna.

2.3. Bráðabirgðatollafgreiðslur

Greiða ber kostnað við tolleftirlit vegna bráðabirgðatollafgreiðslu, þ.m.t. aksturskostnað. Bráðabirgðatollafgreiðsla vöru getur verið heimil ef fullnaðartollafgreiðsla getur ekki farið fram þar sem nauðsynleg tollskjöl vantar eða þeim er ábótavant eða ef fresta þarf ákvörðun um tollverð vöru eða önnur atriði sem tollalög taka til.

2.4. Neyðarleyfi

Greiða ber kostnað við tolleftirlit vegna útgáfu neyðarleyfis, þ.m.t. aksturskostnað. Heimilt getur verið að afhenda vöru samkvæmt neyðarleyfi, þó fullnaðartollafgreiðsla hafi ekki farið fram, ef afhending hennar er brýn og fullnægt er tilteknum skilyrðum, sbr. 37. gr. tollalaga.

2.5. Mat á vörum vegna skemmda, vöntunar eða rýrnunar

Greiða ber kostnað við mat á vörum sem orðið hafa fyrir skemmdum og vegna vöntunar eða rýrnunar, þ.m.t. aksturskostnað.

2.6. Förgun vöru

Greiða ber kostnað vegna förgunar vöru að beiðni eiganda eða vörsluhafa, þ.m.t. aksturskostnað. Um kostnað vegna atbeina þriðja aðila fer eftir 5. gr. Þegar fargað er vörum að beiðni fleiri aðila, greiða þeir kostnað hlutfallslega miðað við vörumagn.

2.7. Flutningur ótollafgreiddrar vöru á milli staða innanlands o.fl.

Greiða ber kostnað við tolleftirlit, þ.m.t. aksturskostnað, sem er nauðsynlegt að mati tollstjóra í tengslum við flutning á ótollafgreiddum vörum á milli staða innanlands, svo og þegar óskað er eftir að Tollgæslan fylgi flutningi eða sé viðstödd affermingu eða fermingu, innsetningu í vörugeymslu, opnun gáma og sambærileg tilvik.

2.8. Tímabundinn innflutningur og aðvinnsla landbúnaðarvara, sbr. 3. tölulið 1. mgr. 7. gr. tollalaga

Greiða ber kostnað við tolleftirlit í tengslum við tímabundinn innflutning og aðvinnslu landbúnaðarvara samkvæmt tilvitnaðri lagaheimild, þ.m.t. aksturskostnað og annan ferðakostnað. Um kostnað við aðkeypta sérfræðiþjónustu fer eftir 5. gr.

2.9. Tollalínan; upplýsinga- og gagnamiðlun úr tölvukerfi tollyfirvalda

Fyrir aðgang að tollalínunni skal greiða gjöld sem hér segir:

  1. Áskriftargjald er kr. 2.200,- fyrir hvern mánuð. Innifalið eru 100 uppflettingar og viðhald aðgangsorðs.

  2. Gjald er kr. 17,- fyrir hverja uppflettingu umfram þær sem innifaldar eru í áskrift.

  3. Gjald er kr. 250,- fyrir hvern vinnslulista.

Hægt er að fá aðgang að vinnulistum eingöngu.

Greiðslutímabil er tveir mánuðir; janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní o.s.frv.

Gjaldskyld upplýsingamiðlun og gagnasendingar úr tölvukerfi tollyfirvalda varða tiltekin fyrirtæki, vörusendingar og stöðu þeirra í tollafgreiðsluferli, skuldfærsluheimildir, skuldfærð aðflutningsgjöld og skuldastöðu.

2.10. Innsiglun; kostnaður við farmverndarinnsigli 1)

Greiða ber kostnað, þ.m.t. aksturskostnað, ef nauðsynlegt er að mati tollstjóra að innsigla ótollafgreiddar vörur meðan á geymslu eða flutningi stendur, svo og ef óskað er eftir að Tollgæslan innsigli slíkar vörur eða rjúfi innsigli.

Gjald fyrir hvert farmverndarinnsigli sem viðurkenndir farmverndaraðilar fá hjá tollstjóra til innsiglunar vörugáma sem hlaðnir eru til útflutnings, sbr. reglur nr. 929/2008 um farmvernd er eftirfarandi:

  1. Flöskuinnsigli (Bolt seal) kr. 110.

  2. Vírinnsigli (Wire seal) kr. 130.

1) Breytt 11.október 2022

2.11. Varðstaða um borð í skemmtiferðaskipum

Greiða ber kostnað við varðstöðu um borð í skemmtiferðaskipum, sem er nauðsynleg, að mati tollstjóra, vegna undanþágu frá skyldu til að læsa inni forða og birgðir á meðan þau eru á tollsvæði ríkisins, sbr. 57. gr. tollalaga.

2.12. Starfsemi tollfrjálsra forðageymslna, tollfrjálsra verslana og tollfrjálsra birgðageymslna þeirra, frísvæða og umflutningsgeymslna

Greiða ber kostnað við tolleftirlit sem tollstjóri metur nauðsynlegt vegna starfsemi tollfrjálsra forðageymslna, tollfrjálsra verslana og birgðageymslna þeirra, frísvæða og umflutningsgeymslna, svo sem hvað varðar sérstakar athuganir og úttektir, talningar og varðstöðu Tollgæslunnar, auk eftirlitsaðgerða sem falla undir aðra töluliði þessarar greinar, og við nauðsynlegt tolleftirlit sem fram fer að beiðni viðkomandi rekstraraðila.

2.13 Námskeiðshald Tollskóla ríkisins

Greiða ber gjald vegna þátttöku annarra en tollstarfsmanna í námskeiðum Tollskóla ríkisins samkvæmt nánari ákvörðun hverju sinni til að standa straum af námskeiðskostnaði, svo sem vegna launa leiðbeinenda og kostnaðar við húsnæði, aðstöðu, tækjabúnað og gerð kennslugagna.

2.14 Skrá yfir affermdar vörur

Ef stjórnandi fars lætur tollstjóra ekki í té nákvæma skrá yfir vörur sem affermdar hafa verið í losunarhöfn getur tollstjóri látið framkvæma talningu á kostnað farmflytjanda, sbr. 62. gr. tollalaga, enda meti hann það nauðsynlegt vegna eftirlits.

2.15 Tolleftirlit ef ótollafgreidd vara er geymd utan viðurkenndra geymslusvæða, sbr. 69. gr. tolla- laga

Greiða ber kostnað við tolleftirlit sem nauðsynlegt er að mati tollstjóra vegna leyfis til geymslu ótollafgreiddrar vöru utan viðurkenndra geymslusvæða. Tollstjóri getur leyft geymslu ótollafgreiddrar vöru utan viðurkenndra geymslusvæða þegar sérstakar ástæður mæla með því og samkvæmt þeim skilyrðum sem hann telur nauðsynleg.

2.16. Förgun ótollafgreiddrar vöru sem ekki verður seld nauðungarsölu eða á frjálsum markaði til lúkningar á gjaldföllnum aðflutningsgjöldum, sbr. 3. mgr. 128. gr. tollalaga

Telji tollstjóri ekki ástæðu til að selja vöru nauðungarsölu eða á frjálsum markaði vegna ástands hennar er honum heimilt að láta farga henni á kostnað innflytjanda.

2.17 Kostnaður við tollskoðun, sbr. 167. gr. tollalaga

Ef innflytjandi eða vörsluhafi sinnir ekki skyldu sinni til aðstoðar við tollskoðun ótollafgreiddrar vöru, skal viðkomandi greiða þann kostnað sem slíkt hefur í för mér sér fyrir Tollgæsluna.

Kostnaðarliðir

3. gr. Launakostnaður

Um ákvörðun launakostnaðar vegna gjaldskyldrar vinnu tollvarða fer samkvæmt þessari grein, sbr. þó 3. mgr. 2. gr.

Launakostnaður miðast við grunnþrep 13. launaflokks í launatöflu tollvarða frá 1. nóvember 2008 að viðbættum 13,04% vegna orlofs og 22,6% vegna launatengdra gjalda, og er sem hér segir:

  1. Tímagjald í dagvinnu: kr. 2.450,81,- pr. klst.

  2. Tímagjald í yfirvinnu (og á sérstökum frídögum): kr. 4.138,49 - pr. klst.

  3. Tímagjald á stórhátíðardögum: kr. 5.479,45- pr. klst.

Við útreikning og innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskránni eru gjöldin hækkuð eða lækkuð í heila tölu. Dagvinnutími er frá kl. 08 til 16 á virkum dögum. Yfirvinnutími er tími sem er utan dagvinnutíma á virkum dögum, auk laugardaga og sunnudaga. Sérstakir frídagar eru skírdagur, laugardagurinn fyrir páska, annar í páskum, sumardagurinn fyrsti, 1. maí, uppstigningardagur, annar í hvítasunnu, frídagur verslunarmanna og annar í jólum. Stórhátíðardagar eru nýársdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, hvítasunnudagur, 17. júní, aðfangadagur jóla eftir kl. 12, jóladagur og gamlársdagur eftir kl. 12.

Þegar launakostnaður er ákveðinn miðað við unnar vinnustundir, skal hver byrjuð klukkustund reiknast sem heil klukkustund.

Tímafjöldi vegna útkalls tollvarðar er sem hér segir:

  • Útkall á virkum dögum telst vera þrjár klukkustundir á tímabilinu frá kl. 18 til 24, nema á föstudögum þá telst útkall á tímabilinu frá kl. 18 til 24 vera fjórar klukkustundir.

  • Útkall á virkum dögum telst vera fjórar klukkustundir á tímabilinu kl. 24 til 07.

  • Útkall á laugardögum, sunnudögum, sérstökum frídögum og stórhátíðardögum telst jafnframt vera 4 klukkustundir.

Kostnaður við útkall eins tollvarðar er því sem hér segir:

  1. Á virkum dögum, öðrum en föstudögum, á tímabilinu frá kl. 18 til 24: kr. 12.415,-

  2. Á föstudögum á tímabilinu frá kl. 18 til 24; á virkum dögum á tímabilinu frá kl. 24 til 07 og á laugardögum, sunnudögum og sérstökum frídögum: kr. 16.554,-

  3. Á stórhátíðardögum: kr. 21.918,-

4. gr. Aksturskostnaður

Aksturskostnað skal miða við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytisins.

Gjald vegna aksturskostnaðar er kr. 111.- pr. km.

Við ákvörðun aksturskostnaðar skal almennt miða við akstur vegna ferða tollvarða frá tollstöð til og frá þeim stað þar sem hin gjaldskylda vinna er unnin. Þó er heimilt að taka tillit til sérstakra ástæðna sem þykja réttlæta frávik til lækkunar á innheimtum aksturskostnaði.

5. gr. Annar kostnaður

Kostnaður vegna atbeina þriðja aðila, sem tengist gjaldskyldri þjónustu tollstjóra, skal innheimtur samkvæmt framlögðum reikningi. Gjalddagi 6. gr. Gjalddagi er útgáfudagur reiknings og eindagi 15 dögum síðar. Ef eigi hefur verið greitt á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.

Langtímasamningar

7. gr.

Þeir sem njóta þjónustu sem gjaldskrá þessi tekur til, eiga þess kost að gera langtímasamning við tollstjóra um greiðslu gjalda fyrir þjónustuna þar sem unnt er að víkja frá ákvæðum gjaldskrárinnar og m.a. kveða á um að greiðsla fyrir þjónustuna nemi ákveðinni upphæð á tilteknu tímabili.

Gildistaka og breytingar á gjaldskránni

8. gr.

Gjaldskrá þessi tekur gildi 1. október 2011.

Gjaldskráin er m.a. miðuð við samningsbundin laun tollvarða og ákvörðun ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytisins um aksturskostnað. Verði breytingar á þessum forsendum, breytist gjaldskráin til samræmis, án sérstaks fyrirvara.

Embætti tollstjóra, 30. september 2011.