Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Breyting á reglugerð um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar

21. september 2026

Þann 18. september síðastliðinn tók gildi reglugerð nr. 1014/2026 um breytingar á reglugerð um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar. Í reglugerðinni er verið að innleiða í íslenskan rétt framselda reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2026/73.

Breytingarnar fela einkum í sér einföldun á innihaldi og framsetningu upplýsinga samkvæmt flokkunarkerfinu (EU Taxonomy) og einföldun á tilteknum tæknilegum matsviðum. Reglugerðin tók gildi þann 18. september 2026.Sjá tilkynningu um breytingar í Stjórnartíðindum: Reglugerð um breytingu á reglugerð um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

Breytingarnar lúta aðallega að einföldun:

  • Upplýsingagjafar vegna lykilmælikvarða (KPI) fyrir veltu, CapEx eða OpEx auk einfaldari sniðmáta.

  • Tæknilegra viðmiða vegna DNSH-viðmiða (Do No Significant Harm) vegna mengunar og notkun hættulegra efna.

Forsvarsfólki þeirra félaga sem falla undir d. lið 66. greinar í lögum 3/2006 um ársreikninga (um ófjárhagslega upplýsingagjöf) er bent á að kynna sér þær breytingar sem framangreind reglugerð hefur í för með sér.