Um farmvernd
Farmvernd er notað um þær fyrirbyggjandi ráðstafanir sem gerðar eru til verndunar farms gegn hvers kyns ógn af hryðjuverkum eða öðrum ólögmætum aðgerðum.
Skattinum er falið að hafa umsjón með farmvernd á landsvísu. Það felur í sér:
Eftirlit með farmi sem flytja á úr landi.
Útgáfu og umsjón með reglum um farmvernd.
Leiðbeiningar til hafnaryfirvalda um kröfur farmverndar við gerð áhættumats og verndaráætlana.
Framkvæmd farmverndar
Fyrirtæki sem flytja farm í millilandaviðskiptum þurfa að:
Sækja um viðurkenningu sem farmverndaraðili hjá Skattinum.
Tilnefna farmverndarfulltrúa sem ber ábyrgð á gerð, framkvæmd og endurskoðun verndaráætlunar.
Fylla út farmverndaryfirlýsingu þar sem skráðar eru upplýsingar um farminn og öryggisstöðu hans. Nánar um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar.
Nota öryggisinnsigli á gáma í samræmi við kröfur tollyfirvalda.
Þjónustuvefur
Skatturinn rekur sérstakan þjónustuvef fyrir farmvernd á farmvernd.tollur.is, þar sem notendur skrá sig inn í gegnum innskráningarþjónustu Ísland.is.
Hægt er að hafa samband við farmverndardeild Skattsins á netfangið farmvernd@skatturinn.is.