HAM - Bætt sjálfsmat
Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík meðferð til að takast á við lágt sjálfsmat. Sjálfsmat er viðhorf eða skoðun sem við höfum á okkur sjálfum. Neikvæð viðhorf valda oft vanlíðan og erfiðleikum í samskiptum.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Hvernig sjálfsmat mótast
Hvað viðheldur neikvæðum viðhorfum
Hvernig hægt er að breyta eigin hugsun og hegðun
Fyrirkomulag
Námskeiðið er ætlað átján ára og eldri.
Námskeiðið felur í sér fræðslu, umræður og heimaverkefni.
Hópnámskeið, hámark tólf manns í hverjum hópi.
Tímalengd námskeiðisins er fimm vikur
Hist er einu sinni í viku, tvo tíma í hvert skipti.
Staðsetning: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Kostnaður
Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Leiðbeinandi: Gyða Dögg Einarsdóttir, sálfræðingur.
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Næstu námskeið
Hefst 14. apríl 2026
14:00 til 16:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Verð: 17.206 kr.
