Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Fitubjúgur - Meðferðir

Námskeiðið er framhald af Fitubjúgur - Fræðsla og mælt er með fara fyrst á það. Námskeiðið er ætlað einstaklingum 18, ára og eldri.

Í fræðslunni verður farið yfir

  • Skilgreiningar á sjúkdómnum og þróun hans.

  • Helstu einkenni fitubjúgs (lipoedema)

  • Hvað veldur einkennum

  • Hlutverk sogæðakerfisins í sjúkdómsmyndinni.

  • Hvað er hægt að gera til að draga úr einkennum og óþægindum.

  • Þrýstingsfatnað, æfingar og sogæðanudd.

Markmiðið er að fá góða innsýn í sjúkdóminn fitubjúg og hvað hægt er að gera til sjálfshjálpar.

Fyrirkomulag

Í boði eru bæði staðnámskeið og fjarnámskeið í gegnum fjarfundarkerfið Teams.

  • Námskeiðið er 1. skipti

    • Tímalengd eru 2 klukkustundir

  • Staðnámskeið: er haldið í: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).

  • Fjarnámskeið: er í gegnum Teams fjarfundakerfið og eru ætlaðir fólki á landsbyggðinni eða þeim sem eiga ekki heimangengt. Fundarboð er sent út 1 til 3 dögum fyrir tímann.

Kostnaður

  • Þátttakendur greiða 5.377 krónur fyrir námskeiðið.

Nánari upplýsingar

  • Leiðbeinendur:

    • Friðný María Þorsteinsdóttir, sjúkraþjálfari

    • Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir, sjúkraþjálfari

    • Ingigerður Guðmundsdóttir, sjúkraþjálfari

    • Marjolein Roodbergen, sjúkraþjálfari

  • Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

  • Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.

Mikilvægt er að tilkynna forföll tímanlega