Fitubjúgur - Fræðsla
Markmið hóptímans er að auka þekkingu og skilning á sjúkdómnum fitubjúg. Fræðslan er ætlað einstaklingum 18, ára og eldri.
Fræðslan hentar öllum konum sem langar til að fræðast um fitubjúg. Í framhaldi af tímanum býðst áframhaldandi þjónusta sem skýrt verður frá í fræðslunni.
Í fræðslunni verður farið yfir
Skilgreiningar á sjúkdómnum og þróun hans.
Alvarleika og dreifingu sjúkdómsins
Greiningu og möguleg meðferðarúrræði
Hvernig bæta má líðan með daglegum lífstíl
Hvaða sérhæfða meðferð er í boði
Fyrirkomulag
Í boði eru bæði staðnámskeið og fjarnámskeið í gegnum fjarfundarkerfið Teams.
Námskeiðið er 1. skipti, 2 klukkustundir alls
Staðnámskeið: er haldið í: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Fjarnámskeið: er í gegnum Teams fjarfundakerfið og eru ætlaðir fólki á landsbyggðinni eða þeim sem eiga ekki heimangengt. Fundarboð er sent út 1 til 3 dögum fyrir tímann.
Kostnaður
Þátttakendur greiða 5.377 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Leiðbeinandi: Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir við offitumeðferð og Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Mikilvægt er að tilkynna forföll tímanlega
Skráning á næstu námskeið
Hefst 22. apríl 2026
09:00 til 11:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Verð: 5.377 kr.
