Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

HAM - Kvíði og þunglyndi

Í hugrænni atferlismeðferð eða HAM lærir þú aðferðir til að takast á við tilfinningalega vanlíðan á árangursríkan hátt.

Á námskeiðinu verður farið yfir:

  • Samspil hugsana, tilfinninga, líkamlegra viðbragða og hegðunar.

  • Áhrifaríkar leiðir til grípa inn í þetta samspil og stuðla þannig að bættri líðan.

Fyrirkomulag

  • Námskeiðið er ætlað 18 ára og eldri.

  • Á námskeiðinu er notast við lesefni, glærukynningar, heimaverkefni og hópumræður.

  • Hópnámskeið, hámark sextán manns í hverjum hópi.

  • Tímalengd námskeiðisins er fimm vikur.

    • Hist er einu sinni í viku, 90 mínútur í hvert skipti.

  • Staðsetning: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, önnur hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).

Kostnaður

  • Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.

Nánari upplýsingar

Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.

Næstu námskeið

Hefst 4. maí 2026

15:00 til 16:30

Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð

Verð: 17.206 kr.