HAM - Svefn
Á svefnnámskeiði Heilsubrúar er boðið upp á Hugræna atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) sem rannsóknir hafa sýnt að er ein árangursríkasta meðferð sem völ er á í dag. Ólíkt svefnlyfjum er HAM-S meðferð sem er án aukaverkana og virkar til lengri tíma.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er ætlað átján ára og eldri.
Á námskeiðinu er notast við lesefni, glærukynningar, hópumræður og heimaverkefni.
Hópnámskeið, hámark tíu manns í hverjum hópi.
Tímalengd námskeiðisins er fjórar vikur
Hist er einu sinni í viku, tveir klukkutímar hvert skipti.
Staðsetning: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Kostnaður
Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Leiðbeinandi: Haraldur S. Þorsteinsson sálfræðingur.
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Næstu námskeið
Hefst 5. maí 2026
15:00 til 17:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Verð: 17.206 kr.
