Hlutverk, markmið og gildi
Hlutverk
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Markmið
Veita þeim sem til hennar leita áhrifaríka og góða heilbrigðisþjónustu.
Bjóða samfellda, aðgengilega og heildræna þjónustu.
Stunda árangursríkan og hagkvæman rekstur.
Heildarskipulag og verkaskipting innan og milli heilsugæslustöðva styðji við framtíðarsýn.
Notuð sé viðeigandi og skilvirk upplýsingatækni.
Stundað sé stöðugt og metnaðarfullt rannsóknar- og fræðslustarf.
Gildi
Virðing - samvinna - fagmennska.
