Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Bólusetningar

Í heilsugæslunni er boðið er upp á bólusetningar fyrir börn og fullorðna.

Bólusetningar barna

Bólusetningar barna byrja þegar barnið er sex vikna og lýkur þegar barnið er 14 ára. Þessar bólusetningar eru gerðar í ung- og smábarnavernd á heilsugæslustöð og í heilsuvernd skólabarna í skóla barnsins.

Bólusetningar fullorðinna

Mælt er með að fullorðnir hafi eftirfarandi í huga tengt bólusetningum:

Nánar um bólusetningar

Flestar bólusetningar eru gerðar á heilsugæslustöðvum. Hægt er að panta tíma hjá sinni heilsugæslustöð.

Bólusett er gegn árlegri inflúensu á haustin og þá er fyrirkomulag auglýst sérstaklega.

Ráðleggingar um bólusetningar geta breyst hratt. Stundum er boðið upp á sérstakar bólusetningar gegn farsóttum sem auglýstar eru sérstaklega.

Reglubundnar bólusetningar fyrir börn og áhættuhópa eru ókeypis fyrir sjúkratryggða en verð annarra bólusetninga má sjá í gjaldskrá.

Fólk sem er skráð á heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins getur fengið ráðgjöf um bólusetningar fyrir ferðafólk í netspjalli Heilsuveru og síðan komið í bólusetningu í Þönglabakka 1, milli klukkan 9 og 15. Þar þarf ekki að bóka tíma.