Fara beint í efnið
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Bólusetningar fyrir forgangshópa frá 20. október

12. október 2026

Fólki 60 ára og eldra ásamt öðrum í forgangshópum verður boðið upp á bólusetningar við inflúensu á öllum heilsugæslustöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá 20. október.

Í samræmi við tilmæli frá sóttvarnalækni munu heilsugæslustöðvar bjóða þeim sem eru í áhættuhópum bólusetningu við inflúensu áður en opnað verður fyrir bólusetningar fyrir alla.

Þeir sem teljast í áhættuhópum eru:

  • Fólk 60 ára og eldra.

  • Börn milli 6 mánaða og 5 ára aldurs.

  • Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi einstaklingar.

  • Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum.

  • Fólk sem telst í áhættu á samsmiti inflúensu og fuglainflúensu vegna starfs síns, samkvæmt skilgreiningu sóttvarnalæknis.

Fólk sem tilheyrir einhverjum af þessum hópum getur bókað tíma í bólusetningu í gegnum Mínar síður á Heilsuveru. Fólk í áhættuhópum greiðir ekki fyrir bólusetningu.

Börn 2 til 4 ára fá nefúða

Vikuna 2. til 6. nóvember verður börnum 2 til 4 ára boðið upp á bólusetningu við inflúensu með nefúða. Ekki þarf að bóka tíma heldur verður opið hús á öllum okkar heilsugæslustöðvum milli 15 og 17.

Tilvalið er fyrir foreldra að koma við á heilsugæslunni með börnin á leiðinni heim eftir leikskólann, og bangsinn er velkominn líka til að fá nefúða.

Allir velkomnir frá 9. nóvember

Frá og með 9. nóvember geta allir sem vilja komið á heilsugæslustöðvar og fengið bólusetningu. Bóka þarf tíma í gegnum Mínar síður á Heilsuveru. Ekki hefur verið opnað fyrir tímabókanir, við munum tilkynna hvenær hægt verður að bóka tíma.

Fólk sem ekki er í áhættuhópum greiðir ekki hefðbundið komugjald á heilsugæslustöð en greiðir fyrir bóluefnið samkvæmt gjaldskrá.