Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

HAM - Svefn

Á svefnnámskeiði Heilsubrúar er boðið upp á Hugræna atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) sem rannsóknir hafa sýnt að er ein árangursríkasta meðferð sem völ er á í dag. Ólíkt svefnlyfjum er HAM-S meðferð sem er án aukaverkana og virkar til lengri tíma.

Fyrirkomulag

  • Námskeiðið er ætlað átján ára og eldri.

  • Á námskeiðinu er notast við lesefni, glærukynningar, hópumræður og heimaverkefni.

  • Hópnámskeið, hámark tíu manns í hverjum hópi.

  • Tímalengd námskeiðisins er fjórar vikur

    • Hist er einu sinni í viku, tveir klukkutímar hvert skipti.

  • Staðsetning: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).

Kostnaður

  • Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.

Nánari upplýsingar

Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.

Næstu námskeið

Hefst 5. maí 2026

15:00 til 17:00

Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð

Verð: 17.206 kr.