HAM - Kvíði og þunglyndi
Í hugrænni atferlismeðferð eða HAM lærir þú aðferðir til að takast á við tilfinningalega vanlíðan á árangursríkan hátt.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Samspil hugsana, tilfinninga, líkamlegra viðbragða og hegðunar.
Áhrifaríkar leiðir til grípa inn í þetta samspil og stuðla þannig að bættri líðan.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er ætlað 18 ára og eldri.
Á námskeiðinu er notast við lesefni, glærukynningar, heimaverkefni og hópumræður.
Hópnámskeið, hámark sextán manns í hverjum hópi.
Tímalengd námskeiðisins er fimm vikur.
Hist er einu sinni í viku, 90 mínútur í hvert skipti.
Staðsetning: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, önnur hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Kostnaður
Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Leiðbeinandi: Haraldur S. Þorsteinsson, sálfræðingur.
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Næstu námskeið
Hefst 4. maí 2026
15:00 til 16:30
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Verð: 17.206 kr.
