Tannlæknavísindi
Kjörsvið: Kjörsvið I
Umsókn um háskólanám
MS - 120 einingar
ISCED flokkur: 0911
Viltu öðlast dýpri skilning á tannlæknavísindum? Langar þig að stunda rannsóknir?
Tannlæknadeild býður upp á rannsóknatengt framhaldsnám til meistaragráðu þar sem námið er sniðið eftir bakgrunni umsækjanda.
Er námið fyrir þig?
Viltu efla þekkingu þína á rannsóknum?
Viltu læra að fjalla um eigin rannsóknir á faglegan hátt?
Langar þig að eiga mögurleika á að sækja um doktorsnám?
Langar þig að bæta við þig meistaranámi?
Um hvað snýst námið?
Meistaranám í tannlæknavísindum er rannsóknartengt framhaldsnám að loknu B.S. prófi, cand.odont eða cand.med et chir. gráðu.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til eins og hálfs árs eða tveggja ára eftir kjörsviði.
Námið skiptist í:
Námskeið, 30 - 60 einingar
Meistaraverkefni, 60 einingar
Kjörsvið
Náminu er skipt í tvö kjörsvið sem eru skipulögð með tilliti til bakgrunns umsækjanda:
Kjörsvið I er fyrir nemendur sem lokið hafa 360 eininga kandídatsprófi í tannlækningum. Nemendur fá metnar 30 einingar úr fyrra námi og ljúka 30 einingum í skyldu- og valnámskeiðum.
Kjörsvið II er fyrir nemendur sem hafa lokið BS prófi. Nemendur ljúka 60 einingum í skyldunámskeiðum, bundnu vali og valnámskeiðum.
Mikilvægt er að velja námskeið sem nýtast við vinnu í lokaverkefni.
Helstu áherslur
Málstofur
Fræðileg umræða og kynningar
Rannsóknarverkefni
Meginmarkmið
Eru að undirbúa nemendur undir akademíska umræðu og rannsóknir um málefni tengd tannlæknavísindum. Námið er mjög góður undirbúningur undir doktorsnám.
Annað
Námið veitir ekki starfsréttindi. Sérmenntunar í klínískum greinum tannlækninga verður að leita erlendis.
Meistarapróf veitir aðgang að doktorsnámi.
Námsstig: Meistaranám, MS
Hefst: Vorönn 2024
Námstími: 2 ár
Umsóknartímabil: 15. september 2023 - 16. október 2023
Námsform: Staðnám
