Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Smáríkjafræði: Smáríki í alþjóðakerfinu

Umsókn um háskólanám

Viðbótardiplóma - 30 einingar

ISCED flokkur: 0312

Í smáríkjafræði er fjallað um þau tækifæri sem smáríki í alþjóðasamfélaginu standa frammi fyrir og þá veikleika sem þau þurfa að vinna bug á. Sérstök áhersla er lögð á að greina stöðu smáríkja í Evrópu einkum með tilliti til Evrópusamrunans. Einnig er sérstaklega fjallað um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu sem og stöðu Íslands í Evrópu.

Er námið fyrir þig?

  • Vilt þú hafa möguleikann á því að halda áfram í MA nám í alþjóðasamskiptum?

  • Langar þig að starfa á alþjóðavettvangi?

  • Vilt þú kynnst betur þeim möguleikum og hindrunum sem smáríki standa frammi fyrir?

  • Hefur þú lokið BA- eða BS-námi?

Um hvað snýst námið?

Viðbótardiplóma í smáríkjafræðum er stutt 30 eininga námsleið fyrir þau sem lokið hafa BA- eða BS-námi í einhverri grein.

Að loknu námi ættu nemendur að hafa góða þekkingu á hvaða stöðu smáríki innan Evrópu hafa gagnvart alþjóðasamfélaginu, skýra mynd af þeim möguleikum og þeim hindrunum sem smáríki standa frammi fyrir bæði innanlands og á alþjóða vettvangi og skilning á því hvernig smáríki innan Evrópu hafa brugðist við alþjóðlegum áskorunum.

Uppbygging náms

Ljúka þarf 30 einingum fyrir lokapróf og miðað við fullan námshraða má ljúka náminu á einu misseri.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið á sviði smáríkjafræða, 26 einingar

  • Námskeið í bundnu vali á sviði smáríkjafræða, 4 einingar.

Meðal viðfangsefna

  • Kenningar í smáríkjafræðum

  • Utanríkismál Íslands

  • Áskoranir og tækifæri smáríkja

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á ensku og kennslubækur eru á ensku. Nemendur þurfa að hafa góða þekkingu á enskri tungu.

Meginmarkmið

Meðal annars er miðað að því að nemendur:

  • Nemandi hafi almennan skilning á kenningum og hugtökum tengdum smáríkjafræðum.

  • Nemandi hafi víðtæka yfirsýn og aukinn skilning á viðfangsefnum smáríkjafræða.

Annað

Nemendur sem sækja um í meistaranám í alþjóðasamskiptum geta fengið námið metið, að uppfylltum inntökuskilyrðum.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, Viðbótardiplóma

Hefst: Haustönn 2024

Námstími: 0.5 ár

Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið