Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Íslenska sem annað mál

Umsókn um háskólanám

BA - 180 einingar

ISCED flokkur: 0232

Nám í íslensku sem öðru máli er kjörin leið fyrir þá sem vilja fá fræðilega og/eða hagnýta þekkingu á íslensku. BA-námið er í senn hagnýtt tungumálanám og almennt fræðilegt nám um íslenska tungu, bókmenntir og sögu Íslands.

Umsóknarfrestur er til 20. maí fyrir umsækjendur sem búa á Íslandi og eru með íslenska kennitölu.

Er námið fyrir þig?

  • Viltu læra góða íslensku?

  • Viltu getað skrifað og talað íslensku vel?

  • Hefur þú gaman af íslenskum bókmenntum og menningu?

  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?

  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Um hvað snýst námið?

Þessi námsleið er einkum ætluð þeim sem hafa fræðilegan áhuga á íslensku máli, bókmenntum og menningu.

Nám í íslensku sem öðru máli er kjörin leið fyrir þá sem vilja fá fræðilega eða hagnýta þekkingu á íslensku. Þú færð nauðsynlegan grunn og fræðilega þekkingu í íslensku máli og menningu til að leggja stund á frekara íslenskunám.

Inntökupróf fyrir umsækjendur

Nauðsynleg hæfni til að standast þetta próf jafngildir því að ljúka Icelandic Online 1 og 2, sjálfsnámsnámskeiðum sem er að finna ókeypis á netinu, eða ljúka 5 þrepum í íslensku í tunngumálaskóla á Íslandi.

Prófið fer fram fyrstu vikuna í júní í Háskóla Íslands. Þau sem ekki geta tekið prófið við Háskóla Íslands þurfa að þreyta það á prófstöð á Íslandi. Nánari upplýsingar verða sendar umsækjendum.

Meðal viðfangsefna

  • Málfræði og beygingarfræði

  • Íslenskt mál og menning

  • Íslenskar bókmenntir, þjóðsögur og þjóðtrú

  • Setningafræði og talþjálfun

Annars vegar er um að ræða tungumálanám þar sem nemendur fá kennslu og þjálfun í að skrifa, tala og skilja nútímaíslensku. Hins vegar almennt fræðilegt nám um íslenska tungu, bókmenntir og sögu Íslands. Fjallað er um beygingakerfi, setningakerfi og hljóðkerfi íslensks nútímamáls.

Nemendur lesa fornbókmenntir og nútímabókmenntir og fjallað er um sögu Íslands og samfélag. Þýðingafræði og þýðingum eru gerð nokkur skil og einnig annars máls fræði þar sem íslenska er í forgrunni.

Markmið

Nemendur eiga að loknu BA-námi:

  • að hafa fengið nauðsynlegan grunn og fræðilega þekkingu á íslensku máli og menningu til að leggja stund á frekara íslenskunám

  • að hafa tileinkað sér sjálfstæði, víðsýni og gagnrýna hugsun sem nýtist þeim í námi og starfi

Kennslutilhögun

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, smærri hópum og umræðutímum. Einnig eru heimaverkefni mikilvægur þáttur kennslunnar í flestum námskeiðum.

Tímasókn er hófleg en heimavinna er mikil og slíkt krefst sjálfstæðra og agaðra vinnubragða og gagnrýninnar hugsunar. Námsmat er af ýmsum toga: skrifleg og munnleg próf, framsaga í tímum, ritgerðir og önnur verkefni.

Aðrar mögulegar námsleiðir

Ítarlegri umfjöllun um námsleiðina, stök námskeið, inntökuskilyrði og umsóknir er að finna hér.

Hagnýtt gildi

Margir hafa haldið áfram námi í íslensku eða skyldum greinum í heimalandi sínu eða hérlendis, enda veitir kunnátta í íslensku, byggð á fræðilegum grunni, mikla möguleika til frekara náms og rannsókna á mörgum sviðum málvísinda og bókmennta.

Aðrir hafa sest hér að, lagt íslensku samfélagi lið og auðgað það. Innflytjendur með traust og góð tök á tungumálinu og almenna þekkingu á íslenskri menningu eru líklegri til þess að aðlagast vel og dafna í íslensku samfélagi.

Umsóknarfrestur

Athugið að aðeins er tekið við umsóknum fyrir nám að hausti. Umsóknarfrestur er 1. febrúar ár hvert. Nemendur með íslenska kennitölu geta einnig sótt um BA-nám á íslenska umsóknartímabilinu, frá 1. mars til 20. maí, í gegnum umsóknagátt Háskóla Íslands.

Styrkir

Mennta- og viðskiptaráðuneyti Íslands veitir árlega um 12 námsstyrki til nemenda frá erlendum háskólum til að stunda nám í BA-námi í íslensku sem öðru tungumáli við Háskóla Íslands. Styrktaráætlunin er í umsjón Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Styrkir eru veittir fyrir tímabilið frá 1. september til 31. maí ár hvert.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BA

Hefst: Haustönn 2026

Námstími: 3 ár

Umsóknartímabil: 28. febrúar 2026 - 20. maí 2026

Námsform: Staðnám eða Fjarnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið