Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Viðburðastjórnun

Umsókn um háskólanám

Grunndiplóma - 60 einingar

ISCED flokkur: 1015

Nám í viðburðastjórnun er stutt en hagnýtt nám sem hentar öllum. Námið spannar einn vetur og er 60 ECTS einingar.Í viðburðastjórnun lærir þú að skipuleggja, fjármagna og stýra stórum og smáum viðburðum frá upphafi til enda. Hvort sem þú ætlar að halda leiðtogafund, tónlistarhátíð, íþróttamót, ráðstefnu, brúðkaup eða afmælisfagnað þá nýtir þú viðburðastjórnun. Viðburðastjórnun nýtist við stofnun eigin fyrirtækja, í störfum hjá einkafyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum. Í viðburðastjórnun er blandað saman því nýjasta í viðburðahaldi í raunheimum og á netinu. Þannig samþættir námið hagnýta færni og fræðilega þekkingu. Nemandi getur bætt viðburðastjórnun ofan á fyrra nám og þannig sérhæft sig og bætt við sig þekkingu sem nýtist á sínu sviði og/eða nýtt námið sem stökkpall inn í frekara nám. Viðburðastjórnun er metin inn í BA námsleiðir við Háskólann á Hólum þar sem nemandi getur þá hafið nám á 2. ári í BA námi að lokinni viðburðastjórnun. Námið er fjarnám en gert er ráð fyrir að nemendur mæti í lotur tvisvar á önn. Að öðru leyti geta nemendur sinnt náminu á þeim tíma sem þeim hentar innan ramma hvers námskeiðs. Nemendur eru að jafnaði í þremur námskeiðum í einu á meðan á námstímanum stendur. Fjögur af fimm námskeiðum hverrar annar spanna hálfa önn (6-7 vikur) en eitt námskeið nær yfir alla önnina. Hægt er að stunda námið samhliða vinnu.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, Grunndiplóma

Hefst: Haustönn 2024

Námstími: 1 ár

Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024

Námsform: Fjarnám