Tómstunda- og félagsmálafræði
Umsókn um háskólanám
BA - 180 einingar
ISCED flokkur: 0922
Tómstundastarf gegnir mikilvægu menningar- og uppeldishlutverki í nútímasamfélagi. Í tómstunda- og félagsmálafræði er fjallað um gildi, þýðingu og hlutverk tómstunda- og félagsmálastarfs fyrir fólk á öllum aldri. Sérfræðiþekking tómstunda- og félagsmálafræðinga felst m.a. í að leiða saman hópa, stuðla að félagslegum þroska og hæfni með fjölbreyttum viðfangsefnum. Fjarnám að mestu eða hluta.
Er námið fyrir þig?
Viltu starfa á sviði tómstunda og félagsmála?
Hefur þú gaman af viðburðastjórnun og vilt verða leiðtogi?
Hefur þú áhuga á að vinna með börnum og unglingum?
Hefur þú áhuga á tómstundaiðkun eldri borgara?
Finnst þér gaman af hópastarfi og útivist?
Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í tómstundafræðum?
Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Um hvað snýst námið?
Í tómstunda- og félagsmálafræði færðu heildarsýn á þá starfsemi sem fer fram í frítíma fólks á öllum aldri.
Námið snýst um að leiða saman hópa, stuðla að félagslegum þroska og hæfni með fjölbreyttum viðfangsefnum.
Markmið námsins er að þú öðlist þekkingu og hæfni til að sinna verkefnum á sviði tómstunda- og félagsmála. Einnig að þú kynnist menningar- og uppeldishlutverki tómstundastarfs í nútímasamfélagi. Það er einnig í boði að taka tómstunda- og félagsmálafræði sem 120 eininga aðalgrein.
Meðal viðfangsefna eru:
Tjáning og samskipti
Tómstundafræði allra aldurshópa
Útinám og náttúra
Hópastarf
Viðburða- og verkefnastjórnun
Jafnrétti og samfélag
Skóla- og frístundastarf
Lífsleikni
Einelti og félagsmál
Reynslunám
Leiðtogafræði
Félagsuppeldisfræði
Námsstig: Grunnnám, BA
Hefst: Vorönn 2024
Námstími: 3 ár
Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024
Námsform: Blandað nám
