Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Táknmálsfræði og táknmálstúlkun

Umsókn um háskólanám

BA - 180 einingar

ISCED flokkur: 0231

Íslenskt táknmál, gjarnan nefnt ÍTM, er eina hefðbundna minnihlutamálið á Íslandi og búa hér á landi um 2-300 manns sem hafa ÍTM að fyrsta máli. Í BA-námi í táknmálsfræði og táknmálstúlkun er lögð áhersla á að nemendur nái hratt og örugglega tökum á íslenska táknmálinu en námið opnar nemendum einnig leið til skilnings á nýjum menningarheimi, sögu, menningu og samfélagi táknmála og málhafa þeirra hérlendis sem annars staðar.

Er námið fyrir þig?

  • Langar þig að læra táknmál?

  • Viltu kynnast nýjum menningarheimi og samskiptaleiðum?

  • Hefur þú áhuga á málvísindum eða samanburði ólíkra tungumála?

  • Hefur þú gaman af mannlegum samskiptum?

  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?

  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Um hvað snýst námið?

Í táknmálsfræði er fyrst og fremst leitast við að kenna nemendum færni í íslensku táknmáli (ÍTM) og veita þeim þekkingu á menningarheimi heyrnarlausra. Nemendur fá þjálfun í málnotkun, málfræði táknmálsins og fræðslu um menningu og sögu heyrnarlausra.

Meðal viðfangsefna

  • Færninámskeið/málnotkun ÍTM

  • Málfræði táknmála

  • Menning og saga táknmálssamfélaga

  • Döff gróði og táknmálsbókmenntir

  • Menningarheimar

  • Þýðingar

  • Táknmálstúlkun

  • Mismunandi samskiptaleiðir

  • Talað mál og framsögn

Fyrstu tvö árin í náminu er áherslan á að nemendur öðlist færni í ÍTM en einnig að þau tileinki sér fræðilega þekkingu á faginu og ástundi akademísk vinnubrögð.

Á þriðja námsári er áherslan á túlkun á milli ÍTM og íslensku bæði fræðilega og í verki og fylgja nemendur starfandi túlkum eftir á vettvangi. Einnig er fjallað er um siðfræði í túlkun og mismunandi samskiptaleiðir er byggja á notkun táknmáls.

Nemendum í táknmálsfræði og táknmálstúlkun til BA-prófs (180 einingar) er skylt að ljúka öllum 180 einingunum sem kenndar eru innan táknmálsfræðinnar.

Forsenda þess að geta hafið nám í táknmálstúlkun er að nemandi hafi lokið öllum námskeiðum á fyrsta og öðru námsári og hafi hlotið fyrstu einkunn að meðaltali í Færninámskeiðum I-IV.

Athugið: Nám í táknmálstúlkun er að öllu jöfnu í boði þriðja hvert ár. Námskeið á öðru námsári eru að jafnaði ekki í boði það skólaár sem kennd eru námskeið í táknmálstúlkun.

Markmið

Markmið námsins er að miðla þekkingu á íslensku táknmáli, menningarheimi heyrnarlausra og túlkun á milli íslensks táknmáls og íslensku.

Kennsluhættir

Kennsla í táknmálsfræði og táknmálstúlkun fer fram í fyrirlestrum, samræðuformi og hópavinnu. Mikil áhersla er lögð á þátttöku nemenda í tímum, sérstaklega þar sem fram fer þjálfun í málnotkun og túlkun. Þar sem táknmál hefur ekki ritmál er erfitt að tileinka sér það í sjálfsnámi. Þetta gerir það að verkum að í nokkrum námskeiðum innan táknmálsfræðinnar er nauðsynlegt að hafa 80% mætingarskyldu.

Í námslýsingu í kennsluskrá er gefið upp ef um mætingarskyldu er að ræða. Lágmarksmætingarskylda er forsenda þess að nemandi öðlist próftökurétt. Í námskeiðum sem hafa mætingarskyldu er yfirleitt minna um sjálfstæðan lestur en þeim mun meiri áhersla er lögð á virkni og þátttöku nemenda í tímum.

Í fræðilegum námskeiðum er mikilvægt að nemendur komi vel undirbúnir og frumskilyrði er að hafa lesið þá texta sem fjalla á um hverju sinni. Annar mikilvægur þáttur heimavinnunnar felst í samningu verkefna og ritgerða. Lesefni er að langmestu leyti á ensku en eitthvað á íslensku og Norðurlandamálum.

Kennsla fer ýmist fram á íslensku eða íslensku táknmáli. Próf geta ýmist verið skrifleg eða munnleg og oftast er ætlast til að nemendur skili heimaverkefnum. Í sumum tilvikum byggist námsmat eingöngu á heimaverkefnum.

Nám í táknmálstúlkun krefst mikillar viðveru nemenda í tímum auk þjálfunar á vettvangi. Nemendur þurfa því að gera ráð fyrir mikilli viðveru bæði innan og utan stundaskrár.

Nám í táknmálstúlkun er að jafnaði í boði þriðja hvert ár. Til að geta stundað það nám skulu nemendur hafa lokið 120 einingum í táknmálsfræði og vera með fyrstu einkunn að meðaltali úr færninámskeiðunum fjórum.

Kennsla í táknmálsfræði fer aðallega fram í Aðalbyggingu, en einhver námskeið eru kennd að hluta eða að öllu leyti í öðrum byggingum, þeirra á meðal Nýja-Garði, í Tungumálamiðstöð.

Mögulegar námsleiðir

Það er hægt að taka þetta nám sem 120 eininga aðalgrein

  • Nemendur taka þá táknmálsfræði sem aðalgrein með 60 eininga aukagrein af annarri námsleið

  • Skylt er að taka öll námskeið á fyrsta námsári; Færninámskeið I og II, Inngang að táknmálsfræði, Málfræði táknmáls I, Aðferðir og vinnubrögð og Menningarheima.

  • Á öðru námsári þurfa nemendur að taka Færninámskeið III og IV og Málfræði táknmáls II auk BA-ritgerðar, 10 einingar að auki innan táknmálsfræðinnar og 10 einingar í valnámskeiðum (má vera námskeið innan táknmálsfræðinnar).

  • Athugið að námskeið á öðru námsári eru ekki kennd árlega.

Það er líka hægt að taka þetta nám sem 60 eininga aukagrein

  • Nemendur taka þá táknmálsfræði sem aukagrein með 120 eininga aðalgrein af annarri námsleið

  • Skylt er að taka námskeiðin Færninámskeið I, Inngangur að táknmálsfræði, Málfræði táknmáls I, Færninámskeið II og Aðferðir og vinnubrögð hafi nemandi ekki lokið sambærilegu námskeiði.

  • Önnur námskeið eru valin úr táknmálsfræði í samráði við umsjónarmann námsins.

Millitúlkun er í boði sem 60 eininga grunndiplóma fyrir þá sem vilja bæta við sig diplómanámi eða taka það eingöngu. Millitúlkun er aðeins fyrir þá sem hafa ÍTM að fyrsta máli.

Hagnýtt gildi

Kennsla tekur mið af íslensku táknmáli og málsamfélagi þess í samanburði við erlend táknmál og menningu og sögu heyrnarlausra í alþjóðlegu samhengi. Grunnnám í táknmálsfræði skilar sér í víðtækri, fjölþjóðlegri menntun sem kemur sér vel í ýmsum störfum í samfélaginu og er jafnframt sterkur grunnur undir framhaldsnám.

Þau sem ljúka 180 einingum í greininni eru þar með táknmálstúlkar. BA-próf með fyrstu einkunn veitir aðgang að meistaranámi á háskólastigi. Nám í greininni hefur því mikið gildi fyrir þá sem vilja kynnast ólíkum menningarheimum og nýjum tungumálum en getur ekki síður aukið starfsmöguleika fólks með menntun á öðrum sviðum.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BA

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 3 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024

Námsform: Staðnám