Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Afbrotafræði

Kjörsvið: Rannsóknartengd afbrotafræði

Umsókn um háskólanám

MA - 120 einingar

ISCED flokkur: 0314

MA nám í afbrotafræði er ný námsleið þar sem meðal annars er lögð áhersla á afbrot og ýmisskonar frávikshegðun, réttar- og löggæslukerfið, lög og réttlæti, ásamt stöðu Íslands í samanburði við aðrar þjóðir.

Námið er kennt á ensku.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á lögum, réttlæti og íslenskri refsistefnu?

  • Langar þig að skoða afbrot á Íslandi í alþjóðlegu samhengi?

  • Ert þú með grunn úr félagsfræði eða hefur þú áhuga á að bæta við þig nauðsynlegum grunni?

  • Langar þig í nám sem stertir á ýmsum flötum samfélagsins?

  • Viltu fræðast um afbrotafræði, þolendafræði, kynjafræði, réttlætisfræði og heilbrigðisvísindi?

Um hvað snýst námið?

Meistaranám í afbrotafræði er opið flestum nemendum sem lokið hafa grunnnámi úr háskóla með fyrstu einkunn.

Ef nemandi hefur ekki grunn í félagsfræði er gerð forkrafa um að nemandi taki eftirfarandi námskeið aukalega:

  • FÉL204G Aðferðarfræði: Rannsóknaraðferðir félagsvísinda

  • FÉL306G Tölfræði I

  • Námskeið í kenningum tekið samhliða MA námi

Val stendur á milli kjörsviðs í akademískri og hagnýtrar afbrotafræði. Í akademískri afbrotafræð er lögð áhersla á rannsóknastörf en í hagnýtri afbrotafræði er meiri áhersla á hagnýtar hliðar afbrotafræðinnar.

Einnig er boðið upp á 30 eininga viðbótardiplóma í félagsfræði með afbrotafræði sem kjörsvið.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist mismunandi eftir þvi hvort kjörsviðið er valin:

Akademísk afbrotafræði:

  • Skyldunámskeið, 10 einingar

  • Bundið val, 40 einingar

  • Frjálst val, 10 einingar

  • Lokaritgerð, 60 einingar

Hagnýt afbrotafræði:

  • Skyldunámskeið, 60 einingar

  • Bundið val, 10 einingar

  • Frjálst val, 20 einingar

  • Lokaritgerð, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt er á ensku fyrir utan fyrir utan valnámskeið annarra námsbrauta sem geta verið kennd á íslensku. Nemendur geta valið um hvort lokaverkefni sé skilað á íslensku eða ensku.

Erlendir umsækjendur, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, þurfa að sýna fram á góða þekkingu á enskri tungu

Meginmarkmið

Meðal annars er miðað að því að nemendur:

  • breikki og dýpki þekkingu sína í afbrotafræði.

  • öðlist yfirsýn yfir afbrot á Íslandi í alþjóðlegu samhengi

  • kunni skil á hlutverki og ólíkum tegundum réttarvörslukerfa

Annað

Rætur afbrotafræðinnar liggja í félagsfræði en greinin er í eðli sínu þverfagleg. Framhaldsnám í afbrotafræði getur því hentað nemendum með grunn háskólagráðu úr flestum greinum. Nemendur í afbrotafræði erlendis hafa fjölbreyttan grunn, til dæmis úr félagsfræði, sálfræði, lögfræði, lögreglufræði eða hagfræði.

Námið getur hentar fólki sem starfar eða hefur starfað í réttarvörslukerfinu mjög vel. Afbrotafræði er hugsuð fyrir fólk sem hefur áhuga á félagslegu samhengi afbrota, refsinga og löggæslu.

Nemendur okkar í framhaldsnámi hafa tekið hluta námsins í starfsþjálfun hjá Fangelsismálastofnun og unnið að verkefnum sem tengjast málaflokki afbrota.

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MA

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024

Námsform: Staðnám